Körfubolti

Grindavíkurkonur á­fram á sigur­göngu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Abby Beeman vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna í kvöld.
Abby Beeman vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna í kvöld. vísir / anton

Grindavík er áfram með fullt hús á toppi Bónus deildar kvenna í körfubolta eftir stórsigur í Grafarvoginum í kvöld.

Grindavíkurkonur unnu 29 stiga sigur á Fjölni, 99-70, og hafa unnið fimm fyrstu leiki sína á leiktíðinni. Grindavík hefur tveggja stiga forskot á Njarðvík og Stjörnuna sem bæði hafa unnið fjóra og tapað einum leik.

Fjölnisliðið hékk í gestunum í fyrsta leikhluta sem Grindavík vann 29-26 og það munaði enn bara sjö stigum á liðunum í hálfleik, 52-45.

Grindvíkingar gengu frá leiknum í þriðja leikhlutanum sem þær unnu 18-4 og munurinn var því orðinn 21 stig fyrir lokaleikhlutann.

Abby Beeman bauð næstum því upp á þrefalda tvennu í Dalhúsum í kvöld en hún skoraði 23 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Ellen Nystrom og Farhiya Abdi skoruðu báðar 16 stig.

Ólöf María Bergvinsdóttir skoraði 14 stig og Hulda Björk Ólafsdóttir var með 10 stig.

Arna Rún Eyþórsdóttir var með 20 stig fyrir Fjölni, Aðalheiður María Davíðsdóttir skoraði 18 stig fyrir og hin bandaríska Charisse Fairley bætti við 16 stigum, 14 fráköstum og 6 stoðsendingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×