Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Kjartan Kjartansson skrifar 28. október 2026 17:15 Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, (t.h.) og Birgir Urbancic frá Umhverfis- og orkustofnun kynntu samanburð á losun miðað við höfðatölu á Loftslagsdeginum 2026 í Hörpu í morgun. Gunnar Sverrisson Þó að losun gróðurhúsalofttegunda vegna raforkuframleiðslu og húshitunar sé mun minni á Íslandi en í Evrópu eru önnur losun töluvert meiri á hvern Íslending en Evrópubúa. Losun vegna vegasamgangna er rúmlega fjörutíu prósentum hærri á Íslandi en í Evrópu miðað við höfðatölu.
Íslandi hefur ítrekað verið lýst sem leiðandi í loftslagsmálum enda sé hér nær ekkert losað af gróðurhúsalofttegundum til þess að framleiða raforku og til þess að hita upp hús. Þannig eru aðeins um fjörutíu kíló af koltvísýringi losuð á hvern Íslending árlega borið saman við 1.400 kíló í ríkjum ESB. Glæra frá Loftslagsdeginum 2026 sem sýnir losun á mann vegna orkuframleiðslu á Íslandi annars vegar og í Evrópusambandinu hins vegar.Umhverfis- og orkustofnun Þær tölur segja þau ekki alla söguna. Kolefnisfótspor Íslendinga er stærra en Evrópubúa í nær öllum öðrum flokkum eins og kom fram í samanburði sem var kynntur á Loftslagsdeginum, ráðstefnu um loftslagsmál í Hörpu í morgun. Losun frá vegasamgöngum er þannig ríflega fjörutíu prósentum meiri á mann hér á landi en í Evrópu, tvöfalt meiri vegna landbúnaðar og margfalt meiri vegna landnotkunar, fiskiskipa og málmframleiðslu. Meiri losun á hvert dýr Flutningar með bílum frekar en lestum og lakari almenningssamgöngukerfi voru á meðal ástæðan sem Birgir Urbancic frá Umhverfis- og orkustofnun og Elín Björk Jónasdóttir frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu nefndu sem ástæður þess að losun á hvern íbúa vegna vegasamgangna væri hærri á Íslandi en í Evrópu. Íslendingar losa umtalsvert meira með akstri en íbúar meginlands Evrópu.Umhverfis- og orkustofnun Í landbúnaði sögðu þau að framleiðsla í sauðfjár- og nautgriparækt væri ekki aðeins hærri miðað við höfðatölu á Íslandi en í Evrópu heldur væri losun á hvert dýr hærra hér en á meginlandinu. Ríflega tvöfalt meiri losun er á mann á Íslandi en í ESB vegna landbúnaðar.Umhverfis- og orkustofnun Hægt væri að draga úr losun frá landbúnaði með sjálfbæru eldsneyti á tæki og vélar og hnitmiðaðri áburðarnotkunar. Þá hefði orka sparast í grænmetisrækt með styrkjum til grænmetisbænda til þess að skipta ljósaperum í gróðurhúsum út fyrir LED-perur. Í sérflokki í landnotkun og sjávarútvegi Þekkt er að losun vegna landnotkunar er hlutfallslega há á Íslandi enda fámenn þjóð í tiltölulega víðfeðmu landi. Losun á mann vegna landnotkunar er þannig tæplega áttatíu sinnum meiri á Íslandi en í Evrópu. Á móti kemur að binding vegna skógræktar er hátt í tvöfalt meiri á mann á Íslandi en á meginlandinu. Hluti skýringarinnar er þó að mælikvarðinn er árleg binding sem eykst á Íslandi með aukinn skógrækt. Evrópubúar eiga ekki roð í Íslendingar þegar kemur að losun á mann vegna landnotkunar.Umhverfis- og orkustofnun Í Evrópu eru flestir skógar aftur á móti fyrir löng fullþroskaðir og binding þeirra helst stöðug, nema þegar skæðir gróðureldar breyta þeim í uppsprettu losunar líkt og gerst hefur ítrekað undanfarin sumur. Ekki þarf að koma á óvart að losun vegna fiskiskipa er langtum meiri á Íslandi en í Evrópu almennt. Sjávarafurðir eru helsta útflutningsvara Íslands frá fornu fari en stór hluti Evrópuríkja er landluktur. Súpa enn seyðið af seinagangi í flokkun sorps Silagangur í að draga úr urðun á sorpi í samanburði við Evrópuríki skýrir hvers vegna losun á mann vegna úrgangs er rúmlega þrefalt meiri hér en ytra. Birgir og Elín Björk sögðu að enn væri meira urðað á Íslandi en í Evrópu. Losun frá úrgangi á sér fyrst og fremst stað vegna rotnunar lífræns efnis sem er urðað yfir lengri tíma. Ísland súpi þannig enn seyðið af fortíðinni og að hafa ekki fyrr byrjað að skilja lífrænan úrgang frá almennu sorpi. Íslendingar héldu áfram að urða lífrænan úrgang eftir að Evrópubúar voru búnir að draga úr því. Afleiðingar þess koma enn fram í losunartölum vegna úrgangs.Umhverfis- og orkustofnun Umsvifamikil álver í fámennu landi eru ástæða þess að losun á hvern Íslending vegna málmframleiðslu er margföld á við Evrópubúa. Losunin er þó fyrst og fremst vegna framleiðslunnar sjálfrar frekar en raforkunnar sem nýtt. Fyrstu skrefin í að fanga og farga koltvísýringi sem losnar frá íslenskum stóriðjuverum hafa þegar verið tekin. Carbfix, dótturfélag Orkuveitunnar, lauk rannsóknarborunum á Grundartanga til þess að kanna hvort jarðlög þar henti til þess að farga koltvísýringi í þessum mánuði. Stóriðjuver Elkem og Norðuráls á Grundartanga taka þátt í því verkefni.
Loftslagsmál Jarðefnaeldsneyti Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin. 22. september 2026 11:01 Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Mannkynið hefur bæði þekkinguna og tólin til þess að kveða loftslagsvandann í kútinn en eitt stærsta verkefnið er að brjóta á bak aftur popúlískt andóf gegn aðgerðum, að mati eins af fremstu loftslagsvísindamönnum í heimi. Einangrunarhyggja og skammsýni stefni árangri í baráttunni í hættu. 18. október 2026 07:02 Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Seinagangur í skipulagskerfinu og áhugaleysi landeigenda eru meðal ástæðna þess að mun hægar hefur gengið að endurheimta votlendi en stjórnvöld stefndu að. Aðeins þrettán hektarar voru endurheimtir í fyrra en stjórnvöld stefna á þrjú þúsund á ári til 2031. 2. október 2026 10:02 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Hyggst þyngja refsingar við að hagnýta börn til afbrota Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Sjá meira
Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin. 22. september 2026 11:01
Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Mannkynið hefur bæði þekkinguna og tólin til þess að kveða loftslagsvandann í kútinn en eitt stærsta verkefnið er að brjóta á bak aftur popúlískt andóf gegn aðgerðum, að mati eins af fremstu loftslagsvísindamönnum í heimi. Einangrunarhyggja og skammsýni stefni árangri í baráttunni í hættu. 18. október 2026 07:02
Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Seinagangur í skipulagskerfinu og áhugaleysi landeigenda eru meðal ástæðna þess að mun hægar hefur gengið að endurheimta votlendi en stjórnvöld stefndu að. Aðeins þrettán hektarar voru endurheimtir í fyrra en stjórnvöld stefna á þrjú þúsund á ári til 2031. 2. október 2026 10:02