Innlent

Gefa út öryggisviðvörun vegna mót­mæla

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Bandaríska sendiráðinu verður lokað snemma í dag.
Bandaríska sendiráðinu verður lokað snemma í dag. Vísir

Bandaríska sendiráðið á Íslandi hefur gefið út sérstaka öryggisviðvörun vegna fyrirhugaðra mótmæla vinafélags Íslands og Kúbu fyrir utan húsnæði þeirra. Sendiráðinu verður lokað snemma.

Tilkynningin var birt á Facebook-síðu sendiráðsins auk myndar þar sem stendur „öryggisviðvörun“ með stórum stöfum á rauðum bakgrunni.

Þar kemur fram að vinafélagið ætli að hefja mótmælin klukkan fimm síðdegis í dag. Mótmælin séu vegna refsiaðgerða Bandaríkjanna gegn Kúbu. Sendiráðinu verði lokað snemma en það verði opnað aftur samkvæmt áætlun í fyrramálið.

Þá eru bandarískir ríkisborgarar hvattir til að forðast svæðið og gæta ávallt varúðar í grennd við mótmæli. Þeir sem verða vitni eða fórnarlamb glæps er bent á að hafa samband við Neyðarlínuna.

„Jafnvel mótmæli sem eiga að vera friðsamleg geta snúist upp í átök og hugsanlega stigmagnast í ofbeldi,“ segir í færslunni.

Bandarísk stjórnvöld hafa ítrekað sett refsiaðgerðir á Kúbu. Þá sauð upp úr á fundi Sameinuðu þjóðanna í gær eftir að Mike Waltz, fulltrúi Bandaríkjanna, sagði að stjórnvöld á Kúbu hefðu grætt á þvingaðri vinnu borgaranna. Við þessi orð létu fulltrúar Kúbu í sér heyra, lömdu í borðið og kölluðu úr salnum.

Miðað við lauslega athugun blaðamanns á Facebook-síðu sendiráðsins hefur álíka viðvörun ekki verið gefin út áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×