Lífið

Sjálfuglaður ráð­herra og allt í boði mysu

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Þáttastjórnandi smakkaði á mysu í þættinum sem féll vægast sagt ekki vel í kramið. Síðan var þetta líka ekki mysa heldur ógeðsdrykkur með hinu og þessu.
Þáttastjórnandi smakkaði á mysu í þættinum sem féll vægast sagt ekki vel í kramið. Síðan var þetta líka ekki mysa heldur ógeðsdrykkur með hinu og þessu. vísir

Í nýjasta þættinum af Hvað er að frétta? var sjónum til að mynda beint að þeim ráðherra sem hefur tekið hvað flestar sjálfur frá embættistöku. Þá var kvennaklefinn hjá landsliðinu í fótbolta tekinn fyrir.

Fjallað var um áhrifavalda í þættinum og duldar auglýsingar og í framhaldinu tilkynnt að þátturinn væri í boði mysu, vökva sem er síaður úr við skyrgerð eða úr hleyptri mjólk. Þáttastjórnandi bragðaði á drykknum sem hefur fylgt Íslendingum til lengri tíma í þættinum. Í spilaranum hér að neðan má sjá viðbrögð þáttastjórnanda við því að smakka á drykknum eftir um sex og hálfa mínútu.

Nema hvað, það var alls ekki um mysu að ræða heldur svokallaðan ógeðsdrykk í anda 70 mínútna. Drykkurinn samanstóð af vatni, G-mjólk, ónefndu appelsínugosi, smá tómatssósu og örlitlu kaffi til að reyna að kalla fram áferð og útlit mysunnar.

Bakgarðurinn var einnig í brennideplinum þar sem Gunnar Lárus Karlsson hljóp 69 hringi og Ísland endaði þar með í tuttugasta sæti af 67 þátttakendum. Auðvitað fullkomið tækifæri til að grínast með 69 og sex sjö (six seven) að hætti unga fólksins en við leggjumst ekki svo lágt, eða hvað?

Einnig var sjónum beint að umfjöllun Kveiks um meint einelti Ölgerðarinnar á samkeppnismarkaði. Það vakti athygli að fréttamaður með falda myndavél bað um kvittun þegar hann keypti vodka í Red Bull. 

Telja má ólíklegt að nokkur hafi áður beðið um kvittun fyrir kaup á viðlíka drykk enda er það ekki ákvörðun sem neinn vill muna eftir að versla vodkaskot í kvíðadjús fyrir heilar 2.300 krónur í miðbæ Reykjavíkur. 


Tengdar fréttir

ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband

„Ef það er einhver sem getur þetta er það Jón Gnarr. Hann er með bullandi ADHD, hann er alltaf að segja okkur það. Hann er góður í að halda mörgum boltum á lofti og redda sér. Ég held að Jón gæti verið maðurinn í þetta.“

Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek

Stóra málið sem var tekið fyrir í þætti þrjú var að þessu sinni örlítið sjálfhverft. Fréttamennska og fjölmiðlar á Íslandi voru í brennideplinum. Í þættinum ákvað þáttastjórnandi að sýna á bak við tjöldin vegna vaxandi umræðu um fréttamennsku í samfélaginu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.