„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. október 2026 18:16 Ingibjörg Isaksen segir verkefni Loftbrúar vanfjármagnað. Vísir/Vilhelm Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ekki vera „einhver afsláttarkjör á flugmiða“ heldur sé verið að jafna aðgengi landsbyggðarinnar að þjónustu. Í stað þess að fargjald sé niðurgreitt um fjörutíu prósent á nú að greiða fasta upphæð fyrir hverja ferð en Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra greindi frá því í gær, í kjölfar harðrar gagnrýni, að upphæðin yrði hærri en upphaflega var greint frá. „Við höfum í sameiningu byggt upp höfuðborgina með þeim hætti að öll opinber þjónusta er hér á stór-höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Ingibjörg Isaksen var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Sjá einnig: „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ „Þannig að ef að fólk þarf að leita að þessari þjónustu þá er ósköp eðlilegt að við jöfnum leikinn með einhverjum hætti því að öll greiðum við auðvitað í sama sjóðinn, í ríkissjóð, með sköttunum okkar.“ Sé í raun vanfjármagnað verkefni Það sé áhyggjuefni að innviðaráðherra skuli slengja fram ákvörðuninni án samtals við sveitarfélögin og án samráðs. Það [er] áhyggjuefni að innviðaráðherra slengi þessu beint fram án þess að tala við sveitarfélögin, án þess að setja í samráð og taki bara ákvörðun um að skerða niður þetta fyrirkomulag um allt að fjórðung.“ Hlusta má á viðtalið við Ingibjörgu í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Innviðaráðherra tefli fram þeim rökum að verkefnið hefði farið fram úr áætlun þrjú ár í röð en ríkið hefur áætlað 600 milljónir í verkefnið síðan árið 2024. Ingibjörg vísar til greinar Þórodds Bjarnasonar, prófessors í félagsfræði og sérfræðings í byggðamálum. „,Hann segir einfaldlega að ef þetta hefði fylgt verðlagi þá værum við að horfa á í kringum 750 milljónir til úrræðisins þannig að það er ekki hægt að segja að við séum búin að fara fram úr þessu ef þetta hefði fylgt verðlagi,“ sagði Ingibjörg. „Þá er þetta í rauninni bara vanfjármögnun á verkefninu.“ „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Hún vilji halda 40 prósenta niðurgreiðslunni í stað krónutölu. „Að minnsta kosti þangað til við förum í eitthvað áhrifamat og einhverjar dýpri greiningar á þessu. Það getur vel verið að þetta sé ekki fullkomið fyrirkomulag en breytum því ekki fyrr en við vitum áhrifin og hvaða leið við viljum frekar fara.“ Það sé gegnumgangandi í störfum núverandi ríkisstjórnar að ekki sé tekið mið af afstöðu landsbyggðarinnar til mála sem hana varðar. „Samráðsgátt er algjörlega sleppt, samráðið við viðkomandi aðila algjörlega hunsað, bara tekin ákvörðun. Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta og ég held það sé afar mikilvægt að láta í okkur heyra núna.“ Hvað viltu að innviðaráðherra geri núna? Ja, ég myndi gjarnan vilja sjá að hann myndi bakka með þessa ákvörðun og taka samtalið, greina þetta og skoða fyrirkomulag um hvort það sé hægt að gera þetta með betri hætti, hvort við getum nýtt fjármunina með betri hætti eða annað en að minnsta kosti ekki skerða þetta aðgengi fólks á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.“ Hvað er lágmarkið sem þú sættir þig við? „Óbreytt fyrirkomulag. Ég tel að það sé bara fyrsta skrefið. Svo ræðum við framhaldið,“ sagði Ingibjörg Isaksen.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík síðdegis Bylgjan Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira