Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. október 2026 13:41 Stefnt er á að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum fyrir jól. Samsett Skíðaáhugafólk er eflaust farið að hlakka til vetursins í fjallinu líkt og starfsmenn Bláfjalla. Rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu segir stefnt á að opna Bláfjöll fyrir jól en enn hefur ekki fryst nægilega til að hefja snjóframleiðslu. „
Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt sé að því að opna fyrir jól, „og ef það er 1. desember er það bara geggjað,“ segir Einar. Er þetta fjórði veturinn sem Bláfjöll nota snjóframleiðslukerfi til þess að lengja opnunartíma vetursins. Snjóframleiðsluvélarnar hafi reynst afskaplega vel. „Þetta hefur bara bjargað síðustu árum þegar er verið að gefa okkur svona milli 12 og 15 aukadaga.“ Síðasta vetur hafi snjórinn þó ekki látið sjá sig fyrr en í lok febrúar. Enn eitt árið hafi mikilvægi snjóframleiðslunnar sannað sig þó að það hafi sannarlega ekki verið eins augljóst og síðustu vetur. Sjá einnig: Óvenjulegu tímabili að ljúka „Það er náttúrulega einstakt að það komi varla náttúrulegt snjókorn vetrarmánuðina sjálfa, nóvember, desember, janúar og nánast allan febrúar. Og ekki nóg með það, hitastigið þessa mánuði var það hátt að nánast aldrei gaf til snjóframleiðslu,“ segir á síðu skíðasvæðanna um síðasta vetur. „Við vorum tvisvar tilbúnir, búnir að troða fyrir jól og græja allt saman. Þá kom hvað, þriggja vikna rigning?,“ segir Einar. Þannig þið vonist eftir betri vetri í ár? „Já, við eigum það bara skilið. Við skulum orða það þannig,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæðanna.
Skíðasvæði Tengdar fréttir Von á byltingu í Bláfjöllum í vetur Í morgun snjóaði í Bláfjöllum. Þó ekki nóg til að opna brekkurnar en rekstrarstjóri segir fólk eiga von á góðu í vetur. Það styttist í opnun og að nýja snjóframleiðslukerfið verði tekið í notkun. 12. október 2023 18:43 Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Stefnt er á að hefja snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli við Akureyri á föstudaginn. Þar með styttist í að skíðasvæðið verði opnað fyrir almenningi. 21. október 2026 16:03 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira
Von á byltingu í Bláfjöllum í vetur Í morgun snjóaði í Bláfjöllum. Þó ekki nóg til að opna brekkurnar en rekstrarstjóri segir fólk eiga von á góðu í vetur. Það styttist í opnun og að nýja snjóframleiðslukerfið verði tekið í notkun. 12. október 2023 18:43
Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Stefnt er á að hefja snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli við Akureyri á föstudaginn. Þar með styttist í að skíðasvæðið verði opnað fyrir almenningi. 21. október 2026 16:03