Körfubolti

„Ég hef á­hyggjur en ég er ekki á­hyggju­fullur“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar.
Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar. Vísir/Diego

Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar, segir að leikur liðsins hafi einfaldlega ekki verið nógu góður í kvöld er liðið mátti þola sex stiga tap gegn Grindavík í 3. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta.

„Við vorum ekki nógu góðir. Við breyttum svolítið því sem við ætluðum að gera varnarlega. Við ætluðum að stoppa þessa íslensku skotmenn í hornunum og reyna að láta hina gera hlutina,“ sagði Emil í leikslok.

„Þetta var full auðvelt fyrir þá í fyrri hálfleik og svo aftur í seinni þegar við breyttum aftur aðeins meira. Varnarlega verðum við bara að vera miklu betri því við erum að fá á okkur allt of mikið af körfum.“

Eftir ágæta byrjun Stjörnunnar í leiknum lenti liðið undir um miðbik 1. leikhluta og náði aldrei að brúa bilið eftir það. Emil segist þó ekki vita hvað vantaði upp á til að ná að snúa dæminu við.

„Ég veit það ekki. Þeir litu bara miklu betur út en við. Ég veit að það var jafnt í fráköstum, en mér fannst þeir samt bara miklu grimmari allsstaðar. Varnarlega fannst mér þeir grimmari og þeir héldu mönnunum fyrir framan sig á meðan við vorum einhvernveginn að missa okkar menn og hjálpin kom of seint. Í seinni hálfleik fannst mér við byrja að hjálpa meira, en við vorum bara einhvernveginn of mikið á hælunum.“

Stjörnumenn hafa nú tapað fyrstu þrem leikjunum í deildinni á tímabilinu.

„Maður hefur alltaf áhyggjur. Meira að segja þó við værum búnir að vinna þessa þrjá. Maður er alltaf að reyna að verða betri og betri. Það góða er að við getum bara orðið betri núna,“ sagði Emil.

„Við erum með þennan nýja leikmann, Nojel Eastern, sem kom inn bara núna og hann þarf að komast aðeins betur inn í þetta því hann er bara nýkominn. Vonandi getum við slípað okkur aðeins betur saman. Ég hef mikla trú á þessu liði og ég held að við eigum mjög mikið inni. Ég held að við munum sýna það,“ bætti Emil við.

„Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur fyrir framtíðinni.“

En hvað geta Stjörnumenn tekið með sér úr þessum leik inn í þann næsta, sem er gegn ÍR í næstu viku?

„Ég veit það ekki. Við þurfum bara aðeins að byrja upp á nýtt. Við erum allavega ekki að fara að spila sömu vörn, en við ætlum bara að sjá hvernig þeir eru og vinna út frá því,“ sagði Emil að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×