„Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. október 2026 21:33 Jordan Semple átti góðan leik fyrir Álftanes í kvöld. Vísir/Diego Jordan Semple átti stórfínan leik fyrir Álftanes er liðið vann 31 stigs stórsigur gegn ÍR í 2. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld.
Semple var stigahæsti maður gestanna, ásamt Dedrick Basile, með 22 stig. Hann tók einnig tíu fráköst og gaf sex stoðsendingar. „Okkur leið vel allan leikinn. Þetta var mjög jafnt í fyrstu tveimur leikhlutunum, en síðan náum við að auka ákefðina og auka forskotið. Við héldum okkur bara við skipulagið,“ sagði Semple í viðtali í leikslok. Hann þakkar góðu undirbúningstímabili fyrir að liðið nái að halda uppi mikilli ákefð allan leikinn. „Undirbúningstímabilið var virkilega gott og Baldur (Þór Ragnarsson, þjálfari liðsins) lagði mjög hart að sér að koma okkur í form. Ákefðin er eitthvað sem við æfum á hverjum degi. Æfingarnar eru svona þannig að þegar við mætum í leiki þá er þetta bara eins.“ Þá segir Semple að það hafi gengið vel hjá Álftanesi að finna rétta taktinn í upphafi tímabils, þrátt fyrir að liðið hafi sótt marga leikmenn sem ekki endilega hafa áður spilað saman. „Við vorum allir mættir fyrr til liðsins en við erum vanir. Þetta eru allt mjög leikgreindir leikmenn sem hafa mikla trú á því sem Baldur hefur verið að selja okkur. Við tökum þessu mjög alvarlega og erum að gera þetta vel.“ Að lokum segir hann að það að hafa breiðan hóp muni hjálpa liðinu. „Það mun klárlega hjálpa okkur, sérstaklega þegar fer að líða á tímabilið. Það munar alveg um það að þurfa ekki að spila 38 mínútur í hverjum leik,“ sagði Semple. „En á sama tíma erum við allir klárir í þetta og við erum í nógu góðu formi til að gera það sem þarf,“ sagði Semple að lokum.
UMF Álftanes Bónus-deild karla ÍR Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bo Johansson er látinn Fótbolti Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Sjá meira