Viðskipti innlent

Rafnar fylgir Herði og segir upp

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Rafnar Lárusson hættir sem fjármálastjóri Landsvirkjunar.
Rafnar Lárusson hættir sem fjármálastjóri Landsvirkjunar.

Rafnar Lárusson hefur ákveðið að láta af störfum sem fjármálastjóri Landsvirkjunar. Hann hafi ákveðið fyrir nokkrum árum að fylgja forstjóranum eftir.

Þessu greinir Rafnar frá í færslu á Linkedin en þann 1. október tilkynnti Hörður Arnarson að hann hygðist hætta sem forstjóri Landsvirkjunar.

„Fyrir nokkrum árum tók ég þá ákvörðun að þegar Hörður Arnarson hætti sem forstjóri Landsvirkjunar myndi ég gera slíkt hið sama sem fjármálastjóri. Ég hef því sagt starfi mínu lausu eftir 16 frábær ár,“ segir Rafnar í færslunni.

„Ég tel mikilvægt að nýr forstjóri fái tækifæri til að velja sér fjármálastjóra enda er náið samstarf þeirra grunnur að góðum árangri.“

Rafnar segist lánsamur að hafa fengið að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum auk þess sem hann hafi náð markmiðum á við að lækka skuldir, draga úr fjárhagslegri áhættu, losna við ríkisábyrgð og ná lánshæfi í fjárfestingaflokki.

„Landsvirkjun hefur því aldrei staðið betur fjárhagslega í 60 ára sögu sinni og er eitt verðmætasta fyrirtæki landsins.“

Hann þakkar samstarfsfólki sínu og öllum hinum „gullmolunum“ innan fyrirtækisins.

„Landsvirkjun er ein af meginstoðum þeirrar einstöku velsældar sem við njótum á Íslandi. Það hafa verið forréttindi að fá að taka þátt í uppbyggingu hennar. Ég geng stoltur frá borði og kveð með söknuði, þótt ég verði áfram um nokkra hríð til að fylgja málum í höfn. 

Nú hefst leit að nýju starfi, með fjölbreytta reynslu í farteskinu. Spennandi tímar!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×