„Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. október 2026 23:41 Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi. EPA Vólódimír Selenskí, forseti Úkraínu, telur að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi svikið sig persónulega eftir að takmarkanir voru gerðar á notkun úkraínska hersins á Starlink-tækninni.
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlink-tækninni sem er gervihnattasamskiptakerfi í eigu SpaceX sem er í eigu Elon Musk. Úkraínskir hermenn fóru að taka eftir takmörkununum aðfaranótt miðvikudags sem fólust í því að ekki væri hægt að fljúga drónum hraðar en sextíu kílómetra á klukkustund án þess að rjúfa tenginu við drónana. Samkvæmt umfjöllun The Guardian gerir það drónana handan víglínunnar óvirka. Einnig hafa takmarkanirnar áhrif á loftvarnarkerfi Úkraínumanna sem væri hvað skilvirkast gagnvart rússneskum árásardrónum. Musk sagði sjálfur í yfirlýsingu fyrr í kvöld að sá hluti tækninnar sem stjórnar áðurnefndum takmörkunum væri undir stjórn bandaríska varnarmálaráðuneytisins og hafði hann ekkert með málið að gera. „Ég er sannfærður um að þeir vissu hvað þeir voru að gera, alveg örugglega. Því klukkan eitt um nótt lokuðu SpaceX og Bandaríkin fyrir Starlink,“ sagði Selenskí í viðtalinu. „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf, auðvitað mun fólk deyja.“ Vill stöðva árásirnar Gerðar voru árásir á Úkraínu í nótt og var það önnur nóttin í röð þar sem Rússar gerðu árásir án þess að einhvers konar viðvörun kæmi frá Bandaríkjunum. Árum saman hafi Bandaríkin veitt Úkraínu upplýsingar um yfirvofandi árásir. Trump neitaði því að ríkisstjórnin hans hefði hætt upplýsingamiðluninni á meðan Selenskí sagði í viðtali við NRP að hernaðarráðgjafar hans hefðu fengið hótanir frá Bandaríkjamönnum. Hótanirnar fælust í því að upplýsingamiðlun kynni að verða takmörkuð í framtíðinni. Ástæðan kann að vera að Trump sé ósáttur með árásir Úkraínumanna á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar. Bandaríkjaforsetinn kennir árásunum um hátt bensínverð í Bandaríkjunum en vísar blaðamaður Guardian í sérfræðinga sem telja að lokun Hormússundsins sé frekar það sem leiði til hás olíuverðs heldur en árásir Úkraínumanna. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrst stóð að tæknin héti Starlight en rétt er að hún heitir Starlink.
Úkraína Rússland Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Bretland Donald Trump Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira