Fótbolti

Ör­lög Elísa­betar í höndum fyrr­verandi mark­varðar Liver­pool

Sindri Sverrisson skrifar
Simon Mignolet lék um árabil með belgíska landsliðinu en hann hefur núna mikið að segja um það hvort Elísabet Gunnarsdóttir verði áfram þjálfari belgíska kvennalandsliðsins.
Simon Mignolet lék um árabil með belgíska landsliðinu en hann hefur núna mikið að segja um það hvort Elísabet Gunnarsdóttir verði áfram þjálfari belgíska kvennalandsliðsins. Samsett/Getty

Belgíska knattspyrnusambandið vegur nú og metur stöðu Elísabetar Gunnarsdóttur og hvort að henni verði boðið að halda áfram sem þjálfari kvennalandsliðs Belgíu nú þegar HM-draumurinn er úr sögunni.

Belgía tapaði í gærkvöld með nístingssárum hætti gegn Póllandi í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.

Þó að Elísabet hafi fengið stuðning leikmanna í viðtölum strax eftir tapið er ljóst að staða hennar er erfið og sumir belgísku miðlanna segja að búist sé við því að leiðir skilji. Samningur Elísabetar átti að gilda fram yfir HM á næsta ári en nú er það mót úr sögunni.

Framkvæmdastjóri belgíska sambandsins lét hafa eftir sér í viðtali í síðustu viku að það væri lágmarkskrafa að Elísabet kæmi Belgíu á HM.

„Þetta er auðvitað ekki í mínum höndum. Ég hef klárlega trú á sjálfri mér en þetta er ekki mitt að ákveða,“ sagði Elísabet strax eftir leik í gærkvöld.

Nieuwsblad og De Standaard segja að framhaldið ráðist núna að miklu leyti af mati Simon Mignolet, fyrrverandi markvarðar karlalandsliðs Belgíu og Liverpool.

Mignolet, sem er 38 ára gamall, er „tæknistjóri“ belgíska knattspyrnusambandsins og mun nú rýna í öll gögn auk þess að ræða við helstu aðila, þar á meðal Elísabetu sjálfa, segir De Standaard.

Pierre Locht, yfirmaður íþróttamála hjá belgíska sambandinu, er svo sagður munu byggja sína ákvörðun á niðurstöðu Mignolet.

Orðið undir gegn Írum, Skotum og Pólverjum

Elísabet tók við belgíska landsliðinu í janúar í fyrra. Undir hennar stjórn vann liðið snemma frækinn sigur gegn Englandi sem og gegn portúgalska liðinu sem bíður þess íslenska í einvígi um sæti á HM. 

Belgía féll svo hins vegar úr leik í riðlakeppninni á EM í Sviss í fyrra og eftir það hefur allt gengið á afturfótunum. Fyrst féll liðið niður í B-deild Þjóðadeildarinnar eftir naumt tap í umspili gegn Írlandi, þar endaði liðið svo í 2. sæti á eftir Skotlandi á markatölu, og loks er það tapið eftir vítaspyrnukeppni gegn Pólverjum í HM-umspilinu. Belgía er rétt fyrir ofan Írland, Skotland og Pólland á heimslistanum, í 20. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×