Sport

„Mættum til leiks í seinni hálf­leik“

Andri Már Eggertsson skrifar
Friðrik Hrafn Jóhannsson, þjálfari Ármanns, í leik kvöldsins
Friðrik Hrafn Jóhannsson, þjálfari Ármanns, í leik kvöldsins Vísir/Pawel

Ármann tapaði gegn Val 78-89 á heimavelli. Leikurinn var jafn og spennandi í fjórða leikhluta þar sem forskot Vals fór minnst niður í þrjú stig. Friðrik Hrafn Jóhannsson, þjálfari liðsins, var ansi svekktur eftir leik.

„Við mættum til leiks í seinni hálfleik. Stelpurnar eiga hrós skilið fyrir að hafa komið til baka eftir spjall í klefanum en það var óþarfi að grafa okkur í svona djúpa holu,“ sagði Friðrik Hrafn í viðtali eftir leik.

Í hálfleik var Valur 22 stigum yfir 28-50. Aðspurður hvað liðið hafi talað um í hálfleik sagði Friðrik að hans stelpur ætluðu að hætta að vorkenna sér.

„Við ætluðum að hætta að vorkenna okkur og sýna hvað við getum. Við erum með gott lið þegar við höfum trú á því sjálfar og við erum okkar versti óvinur.“

Friðrik var ánægður með svæðisvörnina sem að hans mati gerði það að verkum að liðinu fór að ganga betur í seinni hálfleik.

„Við vorum búnar að tala um að fara í þessa svæðisvörn fyrir leik. Hún fór síðan að virka og við héldum áfram að mjólka það.“

„Auðvitað er það fínt fyrir okkur að fá reynslu í að spila jafna leiki. Við þurfum að læra að halda áfram að gera það sem virkar og halda trúnni,“ sagði Friðrik að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×