Viðskipti innlent

TGI Fridays lokað og hann inn­siglaður

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Staðnum var lokað í gær.
Staðnum var lokað í gær. Vísir/Anton Brink

Veitingastaðnum TGI Fridays á Laugavegi var lokað og hann innsiglaður í gær að beiðni Skattsins. Lögregluinnsigli blasti við vegfarendum í morgun.

Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir að Skatturinn hafi óskað eftir aðstoð lögreglu en Morgunblaðið greindi fyrst frá.

Heimilt er að stöðva atvinnurekstur og innsigla starfsstöðvar vegna vangoldinna opinberra gjalda eins og oft er tilfellið þegar gripið er til þessarar ráðstöfunar.

TGI Fridays að Laugavegi 96.Vísir/Anton Brink

Eigendur TGI Fridays, Helgi Magnús Hermannsson og Jóhannes Birgir Skúlason, hafa komið að rekstri fjölda veitingastaða í gegnum tíðina. Vísir fjallaði um gjaldþrot tveggja félaga sem voru í eigu þeirra í ágúst síðastliðnum og annars fyrr í þessum mánuði.

Annars vegar var um félagið OL Restaurant & Sportbar ehf. að ræða en lýstar kröfur í þrotabú þess námu 167 milljónum króna. Félagið rak kaffihúsið Adesso til fjölda ára í Smáralind og Sport & Grill um nokkurra ára skeið í sömu verslunarmiðstöð. Eigandi þeirra staða seldi þeim Helga og Jóhannesi félagið árið 2024 og þeir opnuðu TGI Fridays þar sem Sport & Grill hafði verið.

Hitt félag þeirra Helga og Jóhannesar sem skiptum lauk á nýverið var Búsendi ehf. Það hét áður Grillhúsið ehf. en þeir keyptu Grillhúsið árið 2024. Félagið rak þá samnefnda staði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu námu kröfur í búið alls 208 milljónum króna, án þess að nokkuð fengist upp í þær.

Framangreind gjaldþrot eru ekki þau einu sem tengjast viðskiptafélögunum. Skiptum á þrotabúi Tanksins ehf., sem hélt um tíma utan um eignarhald þeirra á TGI Fridays og Grillhúsinu, lauk í júní í fyrra. Þá fékkst ekkert upp í 277 milljóna kröfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×