Skoðun

Sér­hags­munir í nafni al­mennings

Arnar Sigurðsson skrifar

Guðmundur Ari Sigurjónsson, nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar, sagði á flokksstjórnarfundi um helgina að barátta fyrir almannahagsmunum væri annars eðlis en barátta fyrir sérhagsmunum, og að sterkir sérhagsmunir „verji gríðarlegum fjármunum í að verja sína stöðu“. Undir það má taka. En setningin skilur eftir spurningu sem stjórnmálamenn svara sjaldnast: hvernig þekkir maður annað frá hinu?

Algengasta svarið er einfalt. Sá sem á fjárhagslegra hagsmuna að gæta talar fyrir sérhagsmunum, hinir fyrir almannahag. Kaupmaðurinn er grunsamlegur, embættismaðurinn hlutlaus. Reglan er þægileg en stenst ekki skoðun, því hún gerir ráð fyrir að opinber stofnun eigi enga hagsmuni. Það hefur engin stofnun nokkurn tíma átt.

Stofnanir sem stækka þegar verkefnin minnka

Breski sagnfræðingurinn C. Northcote Parkinson tók eftir því árið 1955 að á árunum 1914–1928 fækkaði orrustuskipum breska flotans um tvo þriðju. Starfsfólki flotamálaráðuneytisins fjölgaði á sama tíma um nær 80 prósent. Ráðuneytið stýrði sífellt stærri skrifstofu yfir hlutfallslega sífellt minni flota. Í nýlenduráðuneytinu var sama saga: starfsfólkinu fjölgaði eftir því sem heimsveldið skrapp saman.

Bresku sjónvarpsþættirnir Já, ráðherra gerðu sér mat úr þessu. Ráðherrann uppgötvar nýtt sjúkrahús með hundruð starfsmanna en engan sjúkling. Sir Humphrey ver það af festu: þetta sé eitt best rekna sjúkrahús landsins, enda trufli engir sjúklingar reksturinn. Auðvitað fyndið dæmi en hið opinbera státar af mörgum slíkum ófyndnum.

Hagfræðingurinn William Niskanen setti þetta í kenningu árið 1971. Forstöðumaður opinberrar stofnunar græðir ekki á hagnaði. Laun hans, mannaforráð og virðing vaxa með fjárveitingunni. Hann hefur því sömu hvata til að stækka og forstjóri fyrirtækis hefur til að græða. Munurinn er sá að fyrirtækið þarf að sannfæra viðskiptavini, stofnunin aðeins fjárveitingavaldið.

Svo eru það ráðstefnurnar. Adam Smith benti á árið 1776 að menn í sömu starfsgrein hittist sjaldan, jafnvel sér til skemmtunar, án þess að talið berist að samsæri gegn almenningi. Hann átti við kaupmenn. Sama lögmál gildir þó um fundi einkasala og lýðheilsuembætta, þar sem allir eru sammála um að vandinn sé of mikið frelsi og lausnin of lítið fjármagn. Það er ekki samsæri. Það er hugsanaþoka sem enginn í salnum sér, af því allir anda henni að sér.

Bruggarar og baptistar

Bandaríski hagfræðingurinn Bruce Yandle lýsti árið 1983 bandalagi sem hann kenndi við bruggara og baptista. Bann við áfengissölu á sunnudögum naut stuðnings tveggja hópa. Baptistar studdu það af siðferðisástæðum og töluðu hátt. Leynibruggarar studdu það af því að bannið færði þeim viðskiptin, og þögðu. Stjórnmálamaðurinn gat vísað til baptistanna og stungið stuðningi bruggaranna í vasann.

Íslenska einkasalan á sína baptista: lýðheilsuembætti og forvarnasamtök sem tala í nafni almennings. Hverjir eru bruggararnir?

Fyrst stofnunin sjálf. Um 300 stöðugildi, 50 verslanir, rekstrarkostnaður upp á um 5,5 milljarða króna á ári og innkaup fyrir um 30 milljarða án útboðs. Engin önnur verslun á landinu getur vísað gagnrýni frá sér sem árás á lýðheilsu.

Næst stóru heildsalarnir. Einkasala er draumur rótgróins birgis: einn kaupandi, fastar reglur og hillupláss sem úthlutað er eftir sölu fyrri ára og verndar því þann sem fyrir er. Jafnvel Kári Stefánsson hefur gagnrýnt að einn innflytjandi ráði meirihluta hilluplássins. Santé kaupir sumar vörur, svo sem Guinness, Aperol og Lagavulin, á hærra innkaupsverði en umboðsaðilinn sem selur ÁTVR, en selur þær samt allt að 20 prósentum ódýrar. Lág álagning ríkisins skilar sér því ekki í lágu búðarverði heldur í ríflegri álagningu heildsalans. Neytandinn heldur að hann njóti ódýrrar ríkisverslunar en greiðir heildsalanum mismuninn.

Loks ríkissjóður, sem lætur hagnað af tóbaksheildsölu bera uppi áfengisverslun sem stendur ekki undir sér ein og sér.

Hverjir tapa? Neytendur, sem fá minna úrval og hærra verð, og litlir framleiðendur sem komast ekki í hillurnar. Þeir eru dreifður hópur og halda engar ráðstefnur.

Raunar fæddist einkasalan sjálf af sérhagsmunum. Árið 1922 kröfðust Spánverjar þess að Íslendingar keyptu af þeim vín, ella yrði lagður tollur á saltfiskinn. Áfengisverslun ríkisins var stofnuð til að taka við Spánarvínunum. Baptistarnir fengu bann við flestu öðru, saltfiskútflytjendurnir fengu markaðinn. Hundrað árum síðar er fiskurinn farinn en einkasalan stendur.

Hagsmunir Santé, sagðir upphátt

Santé hefur hagsmuni. Fyrirtækið vill selja vín og vill gera það án þess að eiga ákæru yfir höfði sér. Það þarf enga rannsóknarblaðamennsku til að grafa það upp.

Munurinn er þessi: ég segi frá mínum hagsmunum. ÁTVR kallar sína hagsmuni lýðheilsu.

Annar munur er hvernig hagsmunirnir eru varðir. Santé getur aðeins stækkað ef viðskiptavinir kjósa að versla þar, og hverfur ef þeir hætta því. ÁTVR stækkar eða minnkar eftir fjárlögum, óháð því hvað viðskiptavinum finnst. Í venjulegri samkeppni svarar maður keppinaut með lægra verði. Í íslenskri áfengisverslun svarar ríkið með ákæru.

Ég hef líka stutt viðskiptafrelsi þar sem það færir Santé ekki krónu, til dæmis frjálsan innflutning landbúnaðarafurða. Það sannar enga göfugmennsku. Það sýnir aðeins að afstaðan ræðst af reglu en ekki rekstrarreikningi.

Prófsteinninn

Upton Sinclair benti á að erfitt sé að fá mann til að skilja eitthvað þegar launin hans byggjast á því að hann skilji það ekki. Það á jafnt við um kaupmenn og embættismenn. Lausnin er ekki að gera alla hagsmunaaðila tortryggilega, heldur að mæla alla á sömu stiku. Hagsmunir gera rök ekki röng. Þeir gera aðeins kröfu um að rökin séu skoðuð af meiri festu.

Þrjár spurningar duga langt:

  1. Fá neytendur meira val eða minna?
  2. Hver ber kostnaðinn, og veit hann af því?
  3. Stenst röksemdin ef hagsmunir þess sem flytur hana eru dregnir frá?

Ronald Reagan sagði eitt sinn að ríkisstofnun væri það næsta sem við kæmumst eilífu lífi hér á jörð. Íslenska áfengiseinkasalan hefur staðfest það í rúma öld.

Guðmundur Ari hefur rétt fyrir sér um að sterkir sérhagsmunir verji miklu fé til að verja stöðu sína. Hann gæti byrjað á að spyrja hver hefur fimm og hálfan milljarð á ári að verja.

Höfundur er annar eigenda Sante.




Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×