Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar 12. október 2026 10:46 Guðmundur Ari Sigurjónsson, nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar, sagði á flokksstjórnarfundi um helgina að barátta fyrir almannahagsmunum væri annars eðlis en barátta fyrir sérhagsmunum, og að sterkir sérhagsmunir „verji gríðarlegum fjármunum í að verja sína stöðu“. Undir það má taka. En setningin skilur eftir spurningu sem stjórnmálamenn svara sjaldnast: hvernig þekkir maður annað frá hinu? Algengasta svarið er einfalt. Sá sem á fjárhagslegra hagsmuna að gæta talar fyrir sérhagsmunum, hinir fyrir almannahag. Kaupmaðurinn er grunsamlegur, embættismaðurinn hlutlaus. Reglan er þægileg en stenst ekki skoðun, því hún gerir ráð fyrir að opinber stofnun eigi enga hagsmuni. Það hefur engin stofnun nokkurn tíma átt. Stofnanir sem stækka þegar verkefnin minnka Breski sagnfræðingurinn C. Northcote Parkinson tók eftir því árið 1955 að á árunum 1914–1928 fækkaði orrustuskipum breska flotans um tvo þriðju. Starfsfólki flotamálaráðuneytisins fjölgaði á sama tíma um nær 80 prósent. Ráðuneytið stýrði sífellt stærri skrifstofu yfir hlutfallslega sífellt minni flota. Í nýlenduráðuneytinu var sama saga: starfsfólkinu fjölgaði eftir því sem heimsveldið skrapp saman. Bresku sjónvarpsþættirnir Já, ráðherra gerðu sér mat úr þessu. Ráðherrann uppgötvar nýtt sjúkrahús með hundruð starfsmanna en engan sjúkling. Sir Humphrey ver það af festu: þetta sé eitt best rekna sjúkrahús landsins, enda trufli engir sjúklingar reksturinn. Auðvitað fyndið dæmi en hið opinbera státar af mörgum slíkum ófyndnum. Hagfræðingurinn William Niskanen setti þetta í kenningu árið 1971. Forstöðumaður opinberrar stofnunar græðir ekki á hagnaði. Laun hans, mannaforráð og virðing vaxa með fjárveitingunni. Hann hefur því sömu hvata til að stækka og forstjóri fyrirtækis hefur til að græða. Munurinn er sá að fyrirtækið þarf að sannfæra viðskiptavini, stofnunin aðeins fjárveitingavaldið. Svo eru það ráðstefnurnar. Adam Smith benti á árið 1776 að menn í sömu starfsgrein hittist sjaldan, jafnvel sér til skemmtunar, án þess að talið berist að samsæri gegn almenningi. Hann átti við kaupmenn. Sama lögmál gildir þó um fundi einkasala og lýðheilsuembætta, þar sem allir eru sammála um að vandinn sé of mikið frelsi og lausnin of lítið fjármagn. Það er ekki samsæri. Það er hugsanaþoka sem enginn í salnum sér, af því allir anda henni að sér. Bruggarar og baptistar Bandaríski hagfræðingurinn Bruce Yandle lýsti árið 1983 bandalagi sem hann kenndi við bruggara og baptista. Bann við áfengissölu á sunnudögum naut stuðnings tveggja hópa. Baptistar studdu það af siðferðisástæðum og töluðu hátt. Leynibruggarar studdu það af því að bannið færði þeim viðskiptin, og þögðu. Stjórnmálamaðurinn gat vísað til baptistanna og stungið stuðningi bruggaranna í vasann. Íslenska einkasalan á sína baptista: lýðheilsuembætti og forvarnasamtök sem tala í nafni almennings. Hverjir eru bruggararnir? Fyrst stofnunin sjálf. Um 300 stöðugildi, 50 verslanir, rekstrarkostnaður upp á um 5,5 milljarða króna á ári og innkaup fyrir um 30 milljarða án útboðs. Engin önnur verslun á landinu getur vísað gagnrýni frá sér sem árás á lýðheilsu. Næst stóru heildsalarnir. Einkasala er draumur rótgróins birgis: einn kaupandi, fastar reglur og hillupláss sem úthlutað er eftir sölu fyrri ára og verndar því þann sem fyrir er. Jafnvel Kári Stefánsson hefur gagnrýnt að einn innflytjandi ráði meirihluta hilluplássins. Santé kaupir sumar vörur, svo sem Guinness, Aperol og Lagavulin, á hærra innkaupsverði en umboðsaðilinn sem selur ÁTVR, en selur þær samt allt að 20 prósentum ódýrar. Lág álagning ríkisins skilar sér því ekki í lágu búðarverði heldur í ríflegri álagningu heildsalans. Neytandinn heldur að hann njóti ódýrrar ríkisverslunar en greiðir heildsalanum mismuninn. Loks ríkissjóður, sem lætur hagnað af tóbaksheildsölu bera uppi áfengisverslun sem stendur ekki undir sér ein og sér. Hverjir tapa? Neytendur, sem fá minna úrval og hærra verð, og litlir framleiðendur sem komast ekki í hillurnar. Þeir eru dreifður hópur og halda engar ráðstefnur. Raunar fæddist einkasalan sjálf af sérhagsmunum. Árið 1922 kröfðust Spánverjar þess að Íslendingar keyptu af þeim vín, ella yrði lagður tollur á saltfiskinn. Áfengisverslun ríkisins var stofnuð til að taka við Spánarvínunum. Baptistarnir fengu bann við flestu öðru, saltfiskútflytjendurnir fengu markaðinn. Hundrað árum síðar er fiskurinn farinn en einkasalan stendur. Hagsmunir Santé, sagðir upphátt Santé hefur hagsmuni. Fyrirtækið vill selja vín og vill gera það án þess að eiga ákæru yfir höfði sér. Það þarf enga rannsóknarblaðamennsku til að grafa það upp. Munurinn er þessi: ég segi frá mínum hagsmunum. ÁTVR kallar sína hagsmuni lýðheilsu. Annar munur er hvernig hagsmunirnir eru varðir. Santé getur aðeins stækkað ef viðskiptavinir kjósa að versla þar, og hverfur ef þeir hætta því. ÁTVR stækkar eða minnkar eftir fjárlögum, óháð því hvað viðskiptavinum finnst. Í venjulegri samkeppni svarar maður keppinaut með lægra verði. Í íslenskri áfengisverslun svarar ríkið með ákæru. Ég hef líka stutt viðskiptafrelsi þar sem það færir Santé ekki krónu, til dæmis frjálsan innflutning landbúnaðarafurða. Það sannar enga göfugmennsku. Það sýnir aðeins að afstaðan ræðst af reglu en ekki rekstrarreikningi. Prófsteinninn Upton Sinclair benti á að erfitt sé að fá mann til að skilja eitthvað þegar launin hans byggjast á því að hann skilji það ekki. Það á jafnt við um kaupmenn og embættismenn. Lausnin er ekki að gera alla hagsmunaaðila tortryggilega, heldur að mæla alla á sömu stiku. Hagsmunir gera rök ekki röng. Þeir gera aðeins kröfu um að rökin séu skoðuð af meiri festu. Þrjár spurningar duga langt: Fá neytendur meira val eða minna? Hver ber kostnaðinn, og veit hann af því? Stenst röksemdin ef hagsmunir þess sem flytur hana eru dregnir frá? Ronald Reagan sagði eitt sinn að ríkisstofnun væri það næsta sem við kæmumst eilífu lífi hér á jörð. Íslenska áfengiseinkasalan hefur staðfest það í rúma öld. Guðmundur Ari hefur rétt fyrir sér um að sterkir sérhagsmunir verji miklu fé til að verja stöðu sína. Hann gæti byrjað á að spyrja hver hefur fimm og hálfan milljarð á ári að verja. Höfundur er annar eigenda Sante. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Sigurðsson Áfengi Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun