Enski boltinn

Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stuðningsmenn City mættu með fjölda uppblásinna banana í stúkuna á Anfield.
Stuðningsmenn City mættu með fjölda uppblásinna banana í stúkuna á Anfield. Getty

Uppblásnir banana í massavís á meðal stuðningsmanna Manchester City á leik við Liverpool á Anfield vekja athygli. Um er að ræða hefð sem nær langt aftur.

Í ljósi dökks skýs sem hangir yfir Manchester City brugðu stuðningsmenn liðsins á leik. Þeir tóku upp gamalt trend frá því á níunda og tíunda áratugnum þegar stuðningsmenn liðsins voru gjarnan með uppblásna banana í stúkunni.

Rekja má uppátækið til tímabilsins 1987-88 þegar City féll í næst efstu deild. Hjá liðinu var framherji sem heitir Imre Varadi sem var kallaður Imre Banana af einum stuðningsmanni.

Það leiddi til þess að annar stuðningsmaður kom með uppblásinn banana á næsta leik. Fleiri slógust í hópinn og hefðin festist og sjá mátti fjölda banana reglulega á leikjum City á níunda og tíunda áratugnum.

Varadi fór sumarið 1988 en furðulegur misskilningur um nafnið hans skildi eftir sig spor hjá stuðningsmönnum.

Stuðningsmenn City smygluðu banönum inn á Anfield í dag og gul stúka blasti við þegar leikurinn hófst í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×