Innlent

Þrír réðust á einn

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Alls voru 53 mál bókuð í kerfi lögreglu í dag. Myndin er úr safni.
Alls voru 53 mál bókuð í kerfi lögreglu í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Þrír voru handteknir og vistaðir í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að ráðast á einn. Sá var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar en ekki er vitað um alvarleika meiðsla. Tveir hinna handteknu eru undir átján ára aldri.

Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir verkefnum í Miðbæ, Vesturbæ, Austurbæ og á Seltjarnarnesi. Málið er unnið í samvinnu við barnavernd og voru foreldrar upplýstir.

Í sama umdæmi var ökumaður stöðvaður við almennt eftirlit en kom þá í ljós að hann hafði stolið bílnum skömmu áður. Bæði voru ökumaðurinn og farþegi handteknir grunaðir í málinu og var ökumaður jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Þá barst lögreglu tilkynning um reiðhjólaslys og var reiðhjólamaðuinn fluttur á bráðamóttöku til skoðunar. 

Tilkynnt var um eld í sumarbústað á varðsvæði lögreglustöðvar fjögur. Umdæmið teygir sig víða en sinnir meðal annars verkefnum í Kjósarhreppi, Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. Var slökkvilið kallað til og slökkti eldinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×