„Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Sindri Sverrisson skrifar 9. október 2026 11:01 Það var mikið hlegið þegar stelpurnar fóru yfir sína hjátrú á leikdegi. Skjáskot/@footballiceland Fyrir leikinn mikilvæga sem Ísland spilar við Króatíu ytra í dag munu einhverjar af stelpunum okkar hreinlega verða að hoppa þrisvar, fá sér tvö tyggjó, klæða sig í vinstri skóinn fyrst eða snerta slána á markinu. Þær skemmtu sér vel við að fara yfir hvaða hjátrú þær hafa á leikdegi.
Ísland mætir Króatíu klukkan 16:45 í dag en seinni leikurinn er svo á Laugardalsvelli á þriðjudaginn. Sigurliðið mætir sigurliðinu úr einvígi Portúgals og Norður-Írlands í tveggja leikja umspili um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar. Eins og sjá má í myndbandi frá KSÍ hér að neðan eru stelpurnar misjafnlega hjátrúarfullar en markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir, sem verið hefur frábær með Inter í haust, fór ekki í neinar grafgötur með það að hún væri mjög hjátrúarfull. „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri eitthvað klikkuð,“ sagði Cecilía lauflétt áður en hún benti meðal annars á að hún þyrfti alltaf að fara í hægri skóinn fyrst, snerta þverslána, sitja í sama stól á liðsfundi og í rútunni og hlusta á sama lagið fyrir leik. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnusamband Íslands (@footballiceland) Hjá flestum af liðsfélögum Cecilíu virtist mesta hjátrúin felast í því að það væri mikilvægt að spila alltaf í sama íþróttatoppnum. „En ef hann er skítugur þá fer ég bara í einhvern annan,“ skaut nýliðinn Líf Joostdóttir van Bemmel inn í. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sagðist alltaf þurfa að hoppa þrisvar fyrir þjóðsönginn og Sveindís Jane Jónsdóttir vill vera með tvö tyggjó í upphitun, sitt hvoru megin í gómnum. Fleira kemur fram í myndbandinu sem sjá má hér að ofan. Stelpurnar minntu svo líka á að miðasala á leikinn mikilvæga næsta þriðjudag væri í fullum gangi. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnusamband Íslands (@footballiceland)
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira