Fótbolti

„Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“

Sindri Sverrisson skrifar
Það var mikið hlegið þegar stelpurnar fóru yfir sína hjátrú á leikdegi.
Það var mikið hlegið þegar stelpurnar fóru yfir sína hjátrú á leikdegi. Skjáskot/@footballiceland

Fyrir leikinn mikilvæga sem Ísland spilar við Króatíu ytra í dag munu einhverjar af stelpunum okkar hreinlega verða að hoppa þrisvar, fá sér tvö tyggjó, klæða sig í vinstri skóinn fyrst eða snerta slána á markinu. Þær skemmtu sér vel við að fara yfir hvaða hjátrú þær hafa á leikdegi.

Ísland mætir Króatíu klukkan 16:45 í dag en seinni leikurinn er svo á Laugardalsvelli á þriðjudaginn. Sigurliðið mætir sigurliðinu úr einvígi Portúgals og Norður-Írlands í tveggja leikja umspili um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.

Eins og sjá má í myndbandi frá KSÍ hér að neðan eru stelpurnar misjafnlega hjátrúarfullar en markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir, sem verið hefur frábær með Inter í haust, fór ekki í neinar grafgötur með það að hún væri mjög hjátrúarfull.

„Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri eitthvað klikkuð,“ sagði Cecilía lauflétt áður en hún benti meðal annars á að hún þyrfti alltaf að fara í hægri skóinn fyrst, snerta þverslána, sitja í sama stól á liðsfundi og í rútunni og hlusta á sama lagið fyrir leik.

Hjá flestum af liðsfélögum Cecilíu virtist mesta hjátrúin felast í því að það væri mikilvægt að spila alltaf í sama íþróttatoppnum.

„En ef hann er skítugur þá fer ég bara í einhvern annan,“ skaut nýliðinn Líf Joostdóttir van Bemmel inn í.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sagðist alltaf þurfa að hoppa þrisvar fyrir þjóðsönginn og Sveindís Jane Jónsdóttir vill vera með tvö tyggjó í upphitun, sitt hvoru megin í gómnum. 

Fleira kemur fram í myndbandinu sem sjá má hér að ofan. Stelpurnar minntu svo líka á að miðasala á leikinn mikilvæga næsta þriðjudag væri í fullum gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×