Bíó og sjónvarp

Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Aðalleikarar kvikmyndarinnar Basic Instinct: Sharon Stone, Michael Douglas og Jeanne Tripplehorn.
Aðalleikarar kvikmyndarinnar Basic Instinct: Sharon Stone, Michael Douglas og Jeanne Tripplehorn. Getty

Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct.

Douglas hefur verið á fjölmiðlatúr fyrir ævisögu sína, One Helluva Ride, sem kom í bókabúðir í gær. Douglas ljóstraði upp um það í síðustu viku að hann hefði haldið við mótleikkonu sína, Kathleen Turner, á meðan þau unnu saman að kvikmyndinni Romancing the Stone (1984). 

Sögusagnir þess efnis voru fyrirferðamiklar á níunda áratugnum en þau höfðu bæði ítrekað hafnað því síðustu áratugina þar til Douglas viðurkenndi loks að þær hefðu verið sannar. En það er ekki eina framhjáhaldið sem hann gengst við í bókinni.

Þegar Douglas var á hátindi ferils síns lék hann á móti Sharon Stone, sem var þá líka ein stærsta stjarna Hollywood, í kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct (1992) sem fjallar um rannsóknarlögreglumanninn Nick (Douglas) sem fellur fyrir glæpasagnahöfundinum Catherine (Stone) sem er grunuð um morð á kærastanum sínum. 

Sögusagnir gengu þá um að Douglas og Stone væru ekki bara mótleikarar heldur elskhugar. Raunin er þó að Douglas átti í ástarsambandi með annarri leikkonu myndarinnar, Jeanne Tripplehorn. Í myndinni lék hún sálfræðing sem á í ástarsambandi með karakter Douglas.

Douglas og Stone í Basic Instinct.

„Fólk var svo upptekið af mögulegu sambandi milli mín og Sharon að raunverulega sambandið milli mín og Jeanne fór framhjá þeim,“ skrifar Douglas um Tripplehorn. Hann lýsir því jafnframt að þau hafi lagt sig mikið fram við að fela sambandið fyrir samstarfsfélögum sínum.

Við tökur í San Francisco hafi Douglas og Tripplehorn eytt mörgum klukkutímum saman, spjallað, kynnst hvort öðru og notið samveru hvor annars, „fjarri settinu og öllu öðru í heiminum“.

„Jeanne var einstök kona,“ sagði Douglas í viðtali við People í gær. Hann tók fram að þau hefðu ekki verið í miklu sambandi eftir að kvikmyndin kom út en hann hefði haft samband við hana til að biðja um leyfi fyrir því að greina frá ástarsambandinu í bókinni.

„Það er langt síðan þetta gerðist en ég hringdi í hana og bað um leyfi. Þetta er hennar mál,“ sagði Douglas og bætti við: „Hún gaf mér leyfi fyrir því.“

Tripplehorn og Douglas áttu í ástarsambandi á skjánum og utan hans.

Douglas skrifar í bókinni að Tripplehorn hafi ekki viljað vera í ástarsambandi með giftum manni. „En ég fullvissaði hana um að við Diandra hefðum skilið formlega... við vorum bæði að hitta annað fólk, lifðum aðskildum lífum og vissum að hjónabandinu væri lokið,“ skrifar hann.

Hann segist hafa kolfallið fyrir henni þrátt fyrir næstum tuttugu ára aldursmuninn milli þeirra, Douglas er 82 ára en Tripplehorn 63 ára. „Ástríðan sem þú sérð á skjánum endurspeglaði raunverulega ástríðuna í stuttu ástarævintýri okkar.“

„Ég var alveg óður í hana. En ég hafði nægilega sjálfskennd til að átta mig á því að það versta sem ég gæti gert á því augnabliki væri að hoppa inn í annað alvörusamband. Samband okkar Jeanne entist út framleiðsluna og svo skildu leiðir. En ég hugsa alltaf um hana sem frábæra leikkonu og sannarlega æðislega konu sem ég var svo heppinn að verja tíma með,“ skrifar Douglas.

Ekki með kynlífsfíkn

Douglas segir frá ýmsu öðru í ævisögunni og kemur því skýrt til skila að hann hafi aldrei þjáðst af kynlífsfíkn, ólíkt því sem kom fram í breskum fjölmiðlum á tíunda áratugnum.

„Ég veit ekki hvort ég svaf hjá mjög mörgum konum. Ég lít ekki á það þannig. Nei, ekki ég. Ég var heilbrigð afurð sjöunda áratugarins,“ sagði Douglas í samtali við The Sunday Time um helgina.

Breskir fjölmiðlar fjölluðu um það árið 1992 að Douglas hefði farið í meðferð við kynlífsfíkn sem hann segir algjörlega ósatt.

„Breskur slúðurblaðsritstjóri fann upp á þessari sögu sem, takk kærlega fyrir, við erum enn að ræða,“ sagði Douglas. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.