Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Jakob Bjarnar skrifar 7. október 2026 14:10 Hlaðvarparar fóru á fund ráðherra í morgun og ræddu sín málefni gagnvart fjölmiðlanefnd. Þau vilja að ráðuneytið grípi í taumana varðandi það sem þau kalla sektaræði nefndarinnar en vandamálið er það að um sjálfstæða stjórnsýslueiningu er að ræða. aðsend Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra tók á móti nokkrum af helstu hlaðvörpum landsins á fundi í morgun. Þar voru málefni fjölmiðlanefndar rædd en einn hlaðvarpara, Þórarinn Hjartarson sem rekur hlaðvarpið Ein pæling, segir að eftir að Logi lýsti yfir stefnubreytingu gagnvart nefndinni hafi hún sett í sjötta gír og hert sektasóknina á hendur þeim. „
Þetta er náttúrlega ríki í ríkinu,“ segir Þórarinn inntur eftir því hvað hafi farið fram á fundinum. Hann sátu ásamt ráðherra tveir sérfræðingar sem voru þau Heiðdís Lilja Magnúsdóttir og Stefán Óli Jónsson auk Tómasar Guðjónssonar aðstoðarmanns ráðherra. Hlaðvarparar sem mættu voru þau Þórarinn, Komið gott-systur, þær Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir auk Birkis Karls Sigurðssonar sem er annar umsjónarmanna hlaðvarpsins Chess after Dark. Öll hafa þau, ásamt reyndar fleiri hlaðvörpurum, fengið erindi frá fjölmiðlanefnd þar sem þess er farið á leit að þau skrái sig hjá nefndinni sem fjölmiðlar. Því vilja þau ekki una, einfaldlega vegna þess að þau líta ekki á sig sem fjölmiðlafólk. Þeir voru vígalegir hlaðvarpararnir sem fóru á fund Loga í morgun. Þar komu þau sjónarmiðum sínum á framfæri og voru að sögn ánægð með það að Logi vildi hitta þau. Þórarinn segist þakklátur fyrir það að ráðherra hafi boðað þau á sinn fund og hafi hlustað á sjónarmið hlaðvarparanna. Nýverið auglýsti fjölmiðlanefnd eftir framkvæmdastjóra og öll sem hér eru nefnd að ofan í hópi hlaðvarpara hafa sótt um starfið. Vísir hefur sent fyrirspurn til fjölmiðlanefndar og óskað eftir nöfnum umsækjenda en umsóknarfrestur er runninn út. Segir nefndina svífast einskis „Ég tel mig vel hæfan í starfið. Ég er stjórnsýslufræðingur að mennt og hef reynslu á öllum sviðum sem varða nefndina. Það kæmi mér ekki á óvart ef ég fengi þessa stöðu,“ segir Þórarinn. Honum virðist full alvara með umsókninni. En hvernig var fundurinn? „Jú, jú, það var velt upp þessum sjónarmiðum að fjölmiðlanefnd væri að starfa eftir lögum samkvæmt og að það kæmi ekki í hlut ráðuneytisins að bregðast við nema þá með lagabreytingum.“ Vandinn er sá að fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslueining og ráðherra getur því ekki hlutast til um störf hennar með beinum hætti. Þórarinn segir að ráðherra og ráðuneytismenn hafi verið að færa rök fyrir sjónarmiðum fjölmiðlanefndar vitandi að hún starfar þvert á stefnu ráðuneytisins. Þórarinn segist telja að það hafi verið meira til málamynda en nokkuð annað. Logi vilji breyta þessu. Það hefur komið fram. „En við þurfum eitthvað haldbært til að geta stutt okkur við. Chess After Dark og Komið gott eru undir mikilli tímapressu. Þessi nefnd svífst einskis á sinni vegferð. Fjölmiðlanefnd hefur þegar farið hart í mig og segir að ég þurfi að lúta þeirra vilja ellegar verði illa fyrir mér komið. Og mér sýnist fjölmiðlanefnd í þeirri vegferð nú að fara á eftir öðrum hlaðvörpum – ekki bara þau hlaðvörp sem eru vinsæl. Það er líkt og hún sé komin í sjötta gír og fari nú eftir hlaðvörpum sem ekki væru eins áberandi.“ Skilur ekki að hlaðvarparar teljist til fjölmiðlamanna Þórarinn segir auglýsinguna frá fjölmiðlanefnd um starfsmann sem eigi að finna sér verkefni til marks um þetta. Hann telur að þau hafi notið skilnings hvað varðar þeirra sjónarmið en þetta sé afar sérstök staða. „Það er ekki verið að gera þetta á Norðurlöndum, sem sagt að krefja hlaðvörp um að skrá sig sem fjölmiðla. Við erum öll í annarri vinnu, þetta er hliðargigg okkur til skemmtunar. Nú eru fjölmiðlastyrkir sem margir eru að bítast um. Að vilja setja okkur undir þennan hatt er afar sérkennilegt.“ Þórarinn segir að þau hafi enn fremur vakið athygli á því sem Árni Helgason þingmaður sagði í pontu Alþingis, að starfsmenn væru í þeirri stöðu að hlusta á hlaðvörp með það fyrir augum að hlusta eftir hugsanlegum brotum meðal þeirra sem eru að blaðra án þess að hafa nokkra ritstjórnarstefnu. Fjölmiðlanefnd sögð ríki í ríkinu „Fjölmiðlanefnd er undir Loga sett en á að heita óháð nefnd. Ég skil ekki alveg þessa stjórnsýslu og er þó stjórnsýslufræðingur að mennt. Eins og þið fjölluðuð um, að Logi væri að skera okkur úr snörunni, þá virðist fjölmiðlanefnd vera ríki í ríkinu og fer bara eftir einhverjum allt öðrum reglum en ættu að gilda. Ef ráðherra leggur einhverjar línur ætti nefndin að taka mið af því,“ segir Þórarinn. Honum virðist nefndin ekki gæta meðalhófs heldur keyri ákaft á refsiheimildum sínum. „Þau sendu á mig sekt fljótlega eftir að Logi hafði lýst því yfir að ekki bæri að skilgreina hlaðvörp sem fjölmiðla. Og ég hef rætt við nægjanlega marga stjórnmálamenn sem telja þetta óásættanlega stöðu. Við erum að missa fjölmiðla, sjónvarpsfréttir Sýnar eru lagðar niður, en það virðist engu skipta. Nefndin horfir ekkert til þess og virðist áfram um eftirlitshlutverk sitt en hirðir í engu um málfrelsi eða að bæta stöðu fjölmiðla. Þetta virðist eingöngu snúast um að fá pening í kassann og sanna tilverurétt sinn, jafnvel þó það kosti að fjölmiðlar fari í þrot.“ Þórarinn er nú að fara yfir sektarákvæði sem á hann var lagt, 500 þúsund krónur, ásamt lögfræðingi sínum. Hann telur þá sem hafa lagt hana á vanhæfa til að gera það en þetta er nokkuð sem hann mun fjalla um síðar. „Flest erum við með húsnæðislán og börn og ótrúlegt að verið sé að sekta okkur fyrir að fjalla um okkar hugðarefni. En það virðist ríkja einhver feimni við að setja fjölmiðlanefnd skorður með til dæmis reglugerð. Lögin eru að fara að breytast en fjölmiðlanefnd virðist ríkja í ríkinu þangað til. Líkt og tröllið sem stal jólunum deila þau út sektum vinstri hægri. Það að verið sé að senda þessa sekt á mig persónulega er með ólíkindum.“ Ósátt við formann Blaðamannafélagsins Nú var Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, í viðtali hjá okkur nýlega og hún taldi ekki úr vegi að fjölmiðlanefnd færi á eftir ykkur. Vísir hefur greint talsverða gremju meðal hlaðvarpara vegna orða hennar en hún vill gera greinarmun á blaðamennsku og svo fjölmiðlum, sem hún telur að þið gætuð fallið undir? „Hún má hafa það sjónarmið. Mér finnst að Sigríður Dögg verði að gera sér grein fyrir því að sífellt erfiðara er að halda úti fjölmiðli. Að reyna að fella fleiri undir það hugtak lýsir óðagoti. Mér finnst hún draga úr vægi fjölmiðla. Ég nýti mér blaðamennsku annarra, fréttir sem ég get blaðrað um. Þegar ég fæ til mín viðmælendur segi ég: „Hvað viltu ræða?“ og ýti svo á „rec“. Að kalla það ritstjórnarstefnu gerir lítið úr starfi fjölmiðla. Elísabet Inga Sigurðardóttir mætir ekki til að taka viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og segist ætla að ýta á rec og sjá hvað gerist. Ég tel þetta skammsýna afstöðu Sigríðar Daggar. Hún hefur rétt á þessari skoðun en vill hún víkka út þessa skilgreiningu og fella til að mynda TikTok-ara þar undir.“ Sigríður Dögg segist geta fært rök fyrir því að áhrifavaldar ættu að skilgreinast sem fjölmiðlar? „Það er galið! Að Facebook-færslur og áhrifavaldar verði þarna undir. Brynjar Níelsson borgarfulltrúi sem fær að meðaltali þúsund læk á sínar færslur, að hann sé þá líka fjölmiðill? Nei, það er enginn sem telur hann vera fjölmiðil.“ Eina stéttin sem fær ekki að skilgreina sig sjálf Þórarinn telur þetta skammsýni og honum fannst Sigríður Dögg vera að gera blaðamönnum óleik með því að flokka Kristínu Gunnarsdóttur sem fjölmiðil. Hann spyr hvort Sigríður Dögg ætli að neyða þetta fólk í Blaðamannafélagið? „Blaðamenn væru þá eina starfsstéttin þar sem fólk er krafið um að vera skilgreint gegn vilja sínum. Ef ég baka sörur fyrir jólin og vil jafnvel að selja þær á Facebook, má ég þá eiga von á því að Bakarafélagið mæti og haldi því fram að ég sé bakari? Þetta er eina starfsstéttin þar sem menn eru skilgreindir sem slíkir í óþökk þeirra sjálfra. Það er glórulaus afstaða.“ Ekki í höndum ráðherra Vísir sendi fyrirspurn til ráðuneytisins og óskaði eftir svörum um hvort eitthvað hefði komið út úr fundinum og hvort til stæði að grípa til aðgerða. Í svari ráðuneytisins segir að fundurinn hafi farið fram til að heyra sjónarmið hlaðvarpsstjórnenda sem hafa tjáð sig um þessi mál. Ráðherra hafi lýst því að hann tæki áhyggjur þeirra alvarlega en undirstrikað að hann gæti ekki hlutast til um störf Fjölmiðlanefndar. Eftir sem áður standi yfir vinna í ráðuneytinu við breytingar á lögum um fjölmiðla. Þar verði meðal annars horft til skráningarskyldu. Frumvarp þess efnis hafi verið boðað eftir áramót. Þá segir að það sé ekki í höndum ráðherra að koma til móts við óskir hlaðvarpara, svo sem með því fresta sektargreiðslum sem lagðar hafa verið á þá og/eða til stendur að leggja á þá fyrir að móast við að skilgreina sig sem fjölmiðlafólk. „Það er ljóst að eftirlitsstjórnvaldi er falin eftirfylgni með lögum og ráðherra hefur lýst því að hann hafi ekki heimildir til að skipta sér af störfum sjálfstæðra eftirlitsstofnana.“
Stjórnsýsla Fjölmiðlar Hlaðvörp Samfélagsmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tjáningarfrelsi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira