Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar 5. október 2026 10:00 Skólakerfið stendur á krossgötum. Niðurstöður PISA fara enn eitt árið niður á við. Nú á að finna lausnir og bjarga málunum. Hvað er það fyrsta sem er gert? Foreldrar skilja ekki námskrána og vilja að börnin þeirra fái einkunnir í tölum en ekki bókstöfum. Ráðherra tekur foreldra á orðinu og með einu pennastriki á að breyta þessu. Ég sé fyrir mér atriði úr áramótaskaupinu. Senan er tekin upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Sóli Hólm leikur Ingu Sæland. Starfsmaður ráðuneytisins:,,Ráðherra, námskráin býður ekki upp á tíu flokka einkunnakvarða.” Inga Sæland: ,,Mér er alveg sama. Það á að gefa einkunnir í tölum.” Starfsmaður ráðuneytisins: ,,Já, en námskráin er núna byggð á sex flokka einkunnakvarða. A, B+, B, C+, C og D. Það passa ekki tíu tölur þarna í staðinn. Dæmið gengur ekki upp.” Inga Sæland: ,,Það skiptir ekki máli. Þið finnið út úr þessu. Ég vil tölur. Ég ræð.” Ráðherra vildi þetta Það væri hægt að hlæja að þessu í áramótaskaupinu en þetta er því miður ekki atriði þar. Á fyrsta kynningarfundi fyrir skólastjórnendur í ágúst um breytt fyrirkomulag á nýju námsmatskerfi var mikill hiti á fundinum. Við vorum ekki sátt við þessar breytingar. Skilaboðin sem við fengum frá ráðuneytinu voru: ,,Ráðherra vildi þetta.” Hvar er samtalið við fagfólkið? Umræðan um nýja matskvarðann fer þessa dagana eins og eldur í sinu um vefmiðla og fólk hlær upphátt. Enginn á að fá einkunnir frá 1-3 og nemendur sem eru á einstaklingsnámskrá eiga að fá 4. Þú ert þá dauðadæmdur ef þú ert á einstaklingsnámskrá. Enginn hvati. Þú færð bara 4. Þú þarft þá ekkert að leggja á þig því það er búið að ákveða einkunnina fyrir þig. Síðan hefst næsta vitleysa. Restin af einkunnagjöfinni er frá 5-10. Útskýringarnar á því hvað hver tala þýðir eru hvorki skýrar né samræmdar eins og markmiðið var. Eiga foreldrar að skilja þetta betur? Kennararnir skilja þetta ekki einu sinni. Við getum alveg eins gefið einkunnir eftir mjólkurvörum. Er ekki rjóminn bestur? Svo nýmjólkin, léttmjólkin og undanrennan. Hvar ætli smjörið og osturinn passi þarna inn í? Þarna er kominn sex flokka einkunnakvarða. Við viljum ekki að menntakerfið okkar verði aðhlátursefni annars staðar í heiminum. Við viljum að faglega sé unnið að öllum breytingum. Vandinn er meiri en einkunnirnar Þarna liggur vandinn. Þetta var líka vandinn árið 2012 þegar námskráin var innleidd. Ég var kennari á gólfinu þá og það tók mig nokkur ár að skilja námskrána. Ég man þegar það kviknaði á perunni hjá mér en það tók tíma og krafðist mikillar dýptar. Af hverju ætli árangurinn í PISA hjá okkur sé ekki nægilega góður þegar við erum að fara eftir námskrá sem er flókin og torskilin? Við erum með hæfniviðmið úr aðalnámskránni sem erfitt er að skilja og meta. Í námskránni stendur að við lok 7. bekkjar getur nemandi: ,,Beitt hugtökum og heitum í náttúruvísindum við fjölbreyttar aðstæður.” Hvaða hugtökum á að beita og við hvaða fjölbreyttu aðstæður? Hvernig á kennari að meta þetta og gefa síðan einkunn fyrir það? Hvernig er hægt að tryggja samræmi í einkunnum milli skóla þegar mörg hæfniviðmið eru svona? Ég hef talað fyrir því áður að það þurfi samfellu á milli skólastiga. Einkunnir í bókstöfum í grunnskóla og einkunnir í tölustöfum í framhaldsskóla passa engan veginn. Af hverju er ekki löngu búið að endurskoða þetta? Ég biðla til ráðherra að hafa hemil á hvatvísinni, hætta við þessa breytingu á talnakvarðanum og hefja þess í stað vinnu við að endurgera námskrána í heild sinni. Það þarf að einfalda námskrána, fækka hæfniviðmiðum og gera hana skilvirkari og skiljanlegri. Það þarf að samræma matskvarða milli skólastiga á faglegan hátt. Það þarf að vanda vel til verka. Þá fyrst sitja allir við sama borð. Flýtum okkur hægt. Höfundur er skólastjóri Hörðuvallaskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun