Erlent

Gerðu á­rás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Friedrich Merz kanslari Þýskalands og Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti héldu blaðamannafund fyrr í dag.
Friedrich Merz kanslari Þýskalands og Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti héldu blaðamannafund fyrr í dag. AP

Rússar gerðu árás á mikilvæga brú í norðurhluta Kænugarðs í Úkraínu á sama tíma og kanslari Þýskalands mætti í heimsókn til borgarinnar. 

Brúin liggur yfir Dnipro-ána og markar árásin á hana fjórða daginn þar sem Rússar hafa gert árásir á brýr Kænugarðs. Þúsundir íbúa aka yfir brúna dag hvern til að komast ferða sinna. Á myndskeiði má sjá að bílum er ekið yfir brúna á sama tíma og eldflaug nálgast.

Tveir særðust í árásinni að sögn Vitali Klitschko, borgarstjóra Kænugarðs. Þetta er annar dagurinn í röð sem árás er gerð á umrædda brú.

Árásin var gerð skömmu eftir að Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, mætti til Kænugarðs til að sýna stuðning sinn við Úkraínu. Þjóðverjar eru orðnir einir dyggustu stuðningsaðilar Úkraínu þegar kemur að hernaði eftir að Merz tók við embætti í maí 2025. 

Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir síðustu daga til að hafa eins mikil áhrif á líf íbúa fyrir veturinn. Skotmörk þeirra eru sömuleiðis orkuinnviðir landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×