Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. október 2026 17:02 María Rut og Snorri voru gestir í Sprengisandi. Vísir Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Þingmenn Viðreisnar og Miðflokksins tókust á um málið í Sprengisandi.
Bókun 35 var tekin fyrir af Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmanni Viðreisnar, og Snorra Mássyni, þingmanni Miðflokksins á Sprengisandi í morgun. „Mér finnst mjög mikilvægt að einhvern veginn hífa þessa umræðu upp úr einhverjum skotgröfum,“ sagði María Rut. „Ef að sumarið gaf okkur eitthvað, umræðan um Evrópumálin og umræðan um, um svona stöðu okkar í heiminum. Þá fannst mér sumarið gefa okkur það að við vorum þó öll sammála um það að við verðum að rækta EES-samninginn betur.“ Það var stór hluti af máli þeirra sem töluðu gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið að Ísland væri þegar hluti af EES-samningnum og nægir hann. Ráðherrar og flokksmenn þeirra hafa því gripið í þann málaflutning og segja það skýrt að allir ættu að tala fyrir betrumbættum EES-samningi. Snorri sagði hins vegar að við inngöngu Íslands í EES-samninginn hafi skuldbindingar gagnvart bókun 35 verið innleiddar eins og menn töldu hæft. Sú innleiðing hafi dugað í þrjátíu ár þar til Evrópusambandið hóf að gera athugasemdir. „Þá töldu menn ekki fært að ganga lengra en að fara með þessa lögskýringarreglu inn í stað þess að hafa þetta forgagnsreglu. Þá er maður einmitt kominn út í lögfræðina en það er munurinn,“ sagði hann. Geti ekki haldið og sleppt Í liðinni viku vísaði Eftirlitstofnun EFTA máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. „Síðasta ríkisstjórn reyndi líka að koma þessu máli í gegn og það tókst ekki og ég held að þetta séu áratugir sem að ESA hefur verið svolítið á bakinu á okkur Íslendingum hvað það varðar að klára þetta mál og ég held að þetta lýsi því kannski að þolinmæðin er pínu á þrotum. Við getum ekki bæði haldið og sleppt,“ sagði María Rut. Snorri telur það hreinlegast að skera úr um málið á vettvangi dómstólsins að hluta til vegna pólitískra ástæðna. „Ekki vegna þess að það vanti raunverulega upp á að við uppfyllum skyldur okkar gagnvart samningnum. Ég lít ekki svo á enda var enginn sem leit svo á hérna áratugum saman þar til menn fóru að breyta skilningi sínum á þessu,“ sagði hann. Geri dómurinn þá kröfu að innleiða þurfi bókun 35 þurfi einnig að ræða hvort að gera þurfi breytingar á stjórnarskrá. Standi vissulega með samningnum Snorri, munið þið hérna þæfa þetta mál eins lengi og mikið og þið getið? „Ég held að það sé aldrei sjálfstætt markmið að þæfa nokkurt mál. Við munum sannarlega taka, eins og þú heyrir í þessu máli, í svona útvarpsviðtali er maður á hundavaði og kemst ekki inn í innri og ytri víddir fullveldishugtaksins í þessu, í sambandi við þetta mál sem er í alvörunni mjög mikilvægt og þetta er ekki bara eitthvað smámál og það er ekki eina leiðin okkar Íslendinga til þess að uppfylla okkar skuldbindingar sem ég sannarlega tel að við eigum að gera eitthvað,“ sagði Snorri. „Af hverju standið þið bara ekki með EES-samningum?“ spyr María þá og sagðist Snorri vissulega standa með samningnum. „Því hvernig við Íslendingar einmitt gætum okkar hagsmuna, hvernig mótaðili okkar gæti sinna hagsmuna. Það er ekki að standa með sínum skuldbindingum sínum að samþykkja allt umyrðulaust frá mótaðilanum og innleiða það.“
Bókun 35 Sprengisandur EFTA Bylgjan Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira