Handbolti

Haukar halda sigur­göngunni á­fram

Andri Broddason skrifar
Haukar eru með fullt hús stiga eftir fyrstu fimm umferðirnar í Olís-deild karla. 
Haukar eru með fullt hús stiga eftir fyrstu fimm umferðirnar í Olís-deild karla.  Anton/Vísir

Haukar sitja enn á toppi Olís-deildar karla eftir að liðið vann sannfærandi sigur á Víkingum í kvöld, 38-29. Haukar hafa ekki enn stigið feilspor í deildinni og byrja deildina sterkt.

Strax í byrjun leiks náðu Haukar forystunni og náðu að halda henni allan leikinn. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn vöknuðu þó Víkingarnir og náðu að minnka forskot Haukanna og endaði hálfleikurinn með tveggja marka forystu Hauka 16-14.

Haukarnir voru sterkari í seinni hálfleik og reyndu Víkingar það sem þeir gátu til þess að halda í við toppliðið en alltaf fengu þeir mark í bakið. Sókn Hauka var frábær í leiknum og áttu varnarmenn Víkinga ekki mikið af svörum.

Þegar leið á seinni hálfleikinn opnuðust enn fleiri glufur í vörn Víkings sem Haukar nýttu sér og skoruðu mikið af mörkum. Haukar enduðu á að vinna góðan níu marka sigur, 38-29.

Freyr Aronsson var markahæsti leikmaður leiksins en hann skoraði 8 mörk fyrir Hauka. Skarphéðinn Ívar Einarsson var stuttu á eftir honum en hann skoraði sjö mörk. Í liði Víkings var Sigurður Páll Matthíasson markahæstur með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×