Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Andri Broddason skrifar 1. október 2026 18:46 Emelía Óskarsdóttir kom inn á sem varnarmaður en náði samt að skora sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni. Mynd/HB Köge Emelía Óskarsdóttir þurfti aðeins að spila í hálftíma til að skora með liði sínu HB Køge þegar það vann Servette frá Sviss í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Leikurinn endaði með 5-1 sigri danska liðsins en á sama tíma spilaði Inter Milan við Austria Wien þar sem leikurinn endaði jafn, 1-1.
HB Køge rétt tapaði fyrir Arsenal í fyrsta leik Meistaradeildarinnar og því var mikilvægt fyrir liðið að sækja góð stig. Danska liðið kom gríðarlega sterkt til leiks þar sem Macy Schultz kom danska liðinu yfir strax á níundu mínútu og var markinu fagnað vel. Á 28. mínútu náði Nadia Nadim að tvöfalda forystu HB Køge og var liðið gríðarlega sannfærandi inni á vellinum. Sjö mínútum síðar komst danska liðið í þriggja marka forystu þegar Noemie Carage, leikmaður Servette, skoraði í sitt eigið mark og var staðan 3-0 í hálfleik. Gestirnir frá Sviss ætluðu ekki að deyja ráðalausir og náði Laia Balleste að minnka muninn eftir frábæra fyrirgjöf úr aukaspyrnu. Kyra Carusa náði þó að skora fjórða mark HB Køge og kom liðinu aftur í þriggja marka forystu. View this post on Instagram A post shared by HB Køge Women (@hbkogewomen) Stuttu eftir það kom Emelía Óskarsdóttir inn fyrir danska liðið og var ákveðin í að setja mark sitt á leikinn. Hún náði því og skoraði frábært mark þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Það reyndist lokamark leiksins og náðu dönsku meistararnir að skora fyrstu stig í sögu félagsins í Meistaradeildinni. Mikilvæg þrjú stig fyrir liðið sem getur tekið reynsluna með sér í næsta leik í Meistaradeildinni sem er gegn stórliði Barcelona. Náðu að bjarja jafntefli Bæði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecelía Rán Rúnarsdóttir voru í byrjunarliði Inter þegar liðið fór í heimsókn til Austria Wien. Leikurinn var jafn og erfiður en heimaliðið komst í forystu á 20. mínútu leiksins með marki frá Modesta Uka. Inter náði að halda vel í boltann en liðið átti í erfiðleikum með að skapa sér færi. Þegar Wien vann boltann var liðið fljótt að komast í góða sóknarstöðu en Cecelía Rán var á tánum í markinu og varði nokkur skot vel. View this post on Instagram A post shared by Inter Women (@inter_women) Inter var byrjað að sækja mikið undir lok leiks og voru heimakonur byrjaðar að leggjast í vörn. Í uppbótartíma fékk Inter loks hornspyrnu þar sem boltinn datt fyrir Ivana Andrés sem náði að leggja boltann í markið og jafna þannig metin. Eftir að hafa bjargað jafntefli er Inter með fjögur stig í Meistaradeildinni þegar aðeins tveir leikir eru búnir og er liðið því í góðri stöðu upp á framhaldið.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Fótbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira