Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Freyja Þórisdóttir skrifar 30. september 2026 18:17 Hildur Sverrisdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þingmaður stjórnarandstöðunnar sem var einn þeirra sem fjármálaráðherra kallaði „þetta lið“ segist vart trúa því að hún þurfi enn á ný að „verjast óskiljanlegum brigslyrðum“ hæstvirts fjármálaráðherra í sinn garð. Hún hafni því sem hann haldi fram um að hún hafi sagt hallarekstur hvergi koma niður og krefst þess að ráðherra vísi þá til hvenær hún hafi gert það.
Þetta er meðal þess sem Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifar í færslu á Facebook-síðu sinni í kjölfar þess að viðtal Vísis við Daða Má Kristófersson var birt. Þar segir hún hann hafa endurtekið afsökun sína vegna dónaskapar hans þar sem hann reiddist snögglega á fundi SFF um daginn og kallaði þingmenn stjórnarandstöðunnar „þetta lið“. Neyðist til að spyrja Hildur snertir á því að hann hafi afsakað þetta á þann veg að honum hafi einfaldlega misboðið svo mikið þegar haldið sé fram að hallarekstur komi hvergi niður. Fréttamaður nefnir í viðtalinu að Hildur hafi hafnað því að hafa sagt fyrrnefnd orð. „Já, það er úr nokkru samhengi við það sem sagt er í þingsal þannig að hafi menn áhuga á því hvað þingmenn segja þá er þetta allt saman tekið upp og spilað. Þannig að þótt ég skipti sjaldan skapi þá hef ég skap og mér fannst þarna ástæða til þess að undirstrika orð mín sérstaklega í ljósi þess að við vorum ekki í þingsal. Það er til lítils að ergja sig þar, sem ég geri heldur ekki, og benda á fáránleika röksemdarfærslunnar,“ segir Daði þá. Í færslunni segist Hildur ekki eiga annarra kosta völ en að velta upp spurningunni: „Er ráðherra að halda því nú fram að ég hafi sagt eitthvað í þessa veru í þingsal?“ Einkar lélegt Hún geri þá vinsamlegu kröfu að hann vísi þá til þess hvenær hún hafi gert það, sér í lagi þar sem allt sem þingmenn segi sé nú einu sinni tekið upp og því ætti að vera aðgengilegt fyrir hann að staðfesta orð sín. „Á meðan ráðherra leitar get ég upplýst að ég hef að mínu viti aldrei nokkurn tímann haldið því fram að hallarekstur hafi ekki afleiðingar. Að sjálfsögðu hefur hallarekstur afleiðingar. Hvort að afleiðingarnar komi fram hjá heimilum og fyrirtækjum í landinu í formi skatta og gjalda eða sem hagræðing hjá ríkinu eða almenn verðmætasköpun er þó hin pólitíska ákvörðun í þeirri stöðu,“ skrifar hún svo. Það sé ríkisstjórnarinnar að svara fyrir um hvaða leið sé valin og henni finnist einkar lélegt að ráðherra afgreiði réttmæta gagnrýni á þeirra pólitíska val með því að „fabrikera og uppdikta skoðanir og orð þeirra sem það gagnrýna.“
Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjá meira