„Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. september 2026 23:17 Guðrún Hafsteinsdóttir ræddi mál Guðmundar Inga í Reykjavík síðdegis í dag. Vísir/Vilhelm Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir ráðherra ríkisstjórnarinnar fyrir að vilja ekki ræða við fjölmiðla. Hún líkir þeim við Bandaríkjaforseta sem er ekki mikill vinur fjölmiðlafrelsis.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hafa verið tvísaga í svörum sínum um brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr ríkisstjórninni. Hún ræddi málið í Reykjavík síðdegis í dag. „Mér finnst hún hafa orðið uppvís að því bæði á Alþingi og núna og líka í viðtölum að einhvern veginn tala út og suður um þessa atburðarás,“ segir Guðrún um Ingu. Engan áhuga á upplifunum Ingu Sæland Hún segir ekki nóg að vísa til ólíkrar upplifunar þeirra sem að málinu komu. „Við höfum aftur á móti engan áhuga að vita hvernig Inga Sæland upplifir lífið og tilveruna. Við erum í starfi þar sem við erum að tala um staðreyndir.“ Guðrún var spurð hvort hún teldi að ráðherrar ættu að íhuga stöðu sína í ljósi málsins. Hún vildi ekki nefna tiltekna ráðherra en minnti á þær skyldur sem hvíldu á kjörnum fulltrúum. „Við sem sitjum á Alþingi Íslendinga, við erum búin að skrifa undir drengskapareið og í þeim eið liggur fyrir að við verðum að segja satt og rétt frá og vera heiðarleg í okkar störfum.“ Ráðamenn eigi að ræða við fjölmiðla Guðrún segir jafnframt áhyggjuefni að ráðamenn neiti að svara spurningum fjölmiðla. Hún ber stöðuna hér á landi saman við samskipti Bandaríkjaforseta við fjölmiðla. Erfitt hefur reynst að ná í ráðherra vegna málsins, þó að auðvitað séu skýringar á því. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna stendur yfir og Ragnar Þór, sem tók við ráðherraembætti eftir brotthvarf Guðmundar, ber fyrir sig að vera of slappur til að ræða við fjölmiðla. „Mér finnst þetta meira að segja farið að minna mig núna á stöðuna eins og er í Bandaríkjunum þar sem að forsetinn þar neitar að tala við ákveðna fjölmiðla og svo framvegis.“ Hún segir fjölmiðla gegna mikilvægu hlutverki við að upplýsa almenning um störf stjórnvalda og eiga að njóta aðgangs að ráðamönnum umfram það sem almenningur hafi almennt. „Þannig að mér finnst þetta snúast bara að hvernig viljum við að stjórnvöld hagi sér.“
Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira