Innlent

Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Laugavegur í miðborg Reykjavíkur. 
Laugavegur í miðborg Reykjavíkur.  Vilhelm

Tré féll á veg í hvassviðrinu í dag í miðborginni. Það þveraði veginn og greinar af trénu höfnuðu á tveimur bílum og ollu skemmdum á þeim.

Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að haft hafi verið samband við eigendur bílanna og tréð í kjölfarið fjarlægt.

Í öðrum veðurtengdum verkefnum fuku tvö trampólín í austurhluta borgarinnar. Annað þeirra hafnaði í garði nágranna og hitt við vegkant.

Að sögn lögreglu voru gerðar viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×