Innlent

Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mynd úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Mynd úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty/Bernd Weißbrod

Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt. 

Nokkrir voru stöðvaðir vegna hraðaksturs, einn ók á 89 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var fimmtíu. Þá voru nokkrir kærðir fyrir að aka án réttinda, gegn rauðu ljósi eða fyrir að aka án skráningarmerkja á ökutæki sínu. Tveir voru kærðir fyrir að hnupla í matvöruverslun.

Þá var ekið á hjólandi vegfaranda í umdæmi lögreglustöðvar 2 sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ. Sá hlaut minni háttar meiðsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×