Flugvirkjar aflýsa verkfalli Árni Sæberg skrifar 23. september 2026 11:13 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. Vísir/Einar Flugvirkjafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa verkfalli sínu. Þetta staðfestir Óskar Einarsson, formaður félagsins, í samtali við Vísi.
Ríkisstjórn Íslands samþykkti í morgun frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um lög um bann við verkfallsaðgerðunum, sem hófust á miðnætti. Til stóð að Alþingi kæmi saman eftir hádegi til þess að ræða frumvarpið. Fjallað hefur verið um verkfallsaðgerðirnar í vaktarfréttinni hér að neðan: Óskar segir að viðbúið hafi verið að lög yrðu sett á frumvarpið en það séu samt sem áður ákveðin vonbrigði. Enginn fundur hafi verið boðaður í kjaradeilu félagsins við Icelandair. Samkomulag um aflýsingu Í fréttatilkynningu frá Icelandair segir að Flugvirkjafélagið og Icelandair hafi komist að samkomulagi um að FVFÍ aflýsi verkfalli félagsins í því skyni að forða frekara tjóni fyrir fyrirtækið, viðskiptavini, starfsfólk og aðra hagsmunaaðila. „Aðilar eru sammála um að nýta næstu 4 vikur til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara með það að markmiði að ljúka samningagerð um nýjan kjarasamning. Á þessu tímabili munu aðilar vinna þétt saman að því að ná fram lausnum á þeim atriðum sem enn standa út af og skapa forsendur fyrir farsælli niðurstöðu.“ Allt flug á áætlun seinnipartinn Icelandair og FVFÍ séu sammála um að halda áfram vinnu við þær tillögur og hugmyndir sem ræddar hafi verið um nýliðna helgi en ekki hafi gefist tími til að leiða til lykta áður en verkfallsboðunin átti að taka gildi. „Með ákvörðuninni um að aflýsa verkfalli skapast nauðsynlegur vinnufriður til áframhaldandi viðræðna. Aðilar lýsa yfir sameiginlegum vilja til að vinna af heilindum og með opnum huga að því að ná samkomulagi um nýjan kjarasamning sem styður við framtíðarhagsmuni starfsfólks og rekstrar félagsins. Allt flug er því á áætlun seinnipartinn í dag frá Keflavík og Reykjavík.“ Fréttin var uppfærð eftir að fréttatilkynning Icelandair barst.
Icelandair Kjaramál Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira