Dauði varnarmannsins Valur Páll Eiríksson skrifar 24. september 2026 08:00 Guðlaugur Victor segir varnarmenn í útrýmingarhættu. Vísir/Einar „Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu.
Varnarlína íslenska landsliðsins í fótbolta hefur verið töluvert í umræðunni um hríð. Margur bíður eftir miðvarðarpari framtíðarinnar, næsta Kára og Ragga. Klippa: Guðlaugur Victor ræðir varnarleikinn, aldurinn og Aron Sverrir Ingi Ingason og Daníel Leó Grétarsson hafa spilað stóran hluta leikja að undanförnu en mikið rót hefur verið á varnarlínu Íslands frá því að þeir Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason hættu. Aðeins þrír miðverðir eru í landsliðshópi Íslands fyrir komandi fjóra leiki; Aron Einar Gunnarsson, Daníel Leó Grétarsson og Hörður Björgvin Magnússon. Þeir eru fjórir er Guðlaugur Victor er talinn með, en Guðlaugur er í raun eini hægri bakvörðurinn, eftir að Bjarki Steinn Bjarkason datt út. Varnarmaðurinn að deyja út Þessu fylgja áhyggjur af skorti á yngri varnarmönnum sem geti tekið skrefið upp í A-landsliðið. Guðlaugur Victor segir um almennara vandamál að ræða en eingöngu á Íslandi. „Fyrir mitt leyti meira bara svona glóbal dæmi frekar en eitthvað íslenskt. Ég hef séð þetta bara núna í þeim löndum sem ég hef verið að spila í að það er ekkert rosalega mikið af hreinræktuðum varnarmönnum; þessum svona gamla skóla varnarmönnum að koma upp,“ „Fótboltinn er bara búinn að breytast rosalega mikið. Núna snýst þetta allt um að spila sig út úr vörninni og boltatækni. Ég held þetta sé miklu meira bara heildar glóbal dæmi frekar en eitthvað íslenskt af því ég sé þetta á mörgum öðrum stöðum,“ segir Guðlaugur Victor. Er miðvörðurinn bara að hverfa á heimsvísu? „Já, og ekkert bara hann heldur líka kannski þessi gamla sexa sem var þessi ryksuga, þú veist, þú sérð hann heldur ekkert mikið lengur. Þannig að fótboltinn er bara búinn að breytast rosalega mikið en nú snýst þetta miklu meira um hvað þú gerir með boltann í löppunum og þannig frekar en þessa hreinræktuðu varnarmenn,“ segir Guðlaugur Victor. Það eru ekki margir ungir miðverðir í hópnum í dag. En er það þá á ábyrgð ykkar sem eruð eldri í hópnum að taka við þá inn og hjálpa þeim að taka við þessu kefli eða hvað? „Já, klárlega. Vonandi er þetta líka bara eitthvað sem er hægt að skoða hjá klúbbunum og og svo framvegis að kannski setja fókusinn svolítið á þetta,“ „Að fara kannski aftur aðeins í að vinna meira með varnarleikinn og hvort sem það er í, sem hafsent, bakvörð eða miðjumenn. Kannski í staðinn fyrir tækniskóla að hafa þá varnarskóla,“ segir Guðlaugur og brosir. Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Sjá meira