Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Birgir Olgeirsson skrifar 22. september 2026 14:38 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri fagnar athugun endurskoðunarnefndar á fjárhagsaðstoð borgarinnar. Hún segir mikilvægt að stuðningurinn renni til þeirra sem þurfa helst á honum að halda og að vinnufært fólk festist ekki í kerfinu. Vísir/Einar Mikilvægt er að vinnufært fólk festist ekki á fjárhagsaðstoð og komist aftur út á vinnumarkað, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún styður athugun endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar á aðstoðinni, þar sem meðal annars er óskað eftir upplýsingum um þjóðerni þeirra sem þiggja hana.
Nefndin kallaði á fundi sínum í gær eftir upplýsingum frá velferðarsviði borgarinnar um fjárhagsaðstoð frá og með árinu 2016. Hún vill fá upplýsingar um þjóðerni, kyn og aldur þeirra sem fá aðstoð, fjárhæðir og hversu lengi hver og einn hefur fengið hana. Þá óskar nefndin eftir samanburði á fjölda erlendra bótaþega og fjölda fólks af viðkomandi þjóðerni hér á landi. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis segir Hildur að nefndin hafi sjálf átt frumkvæði að athuguninni. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir stuðningskerfi þurfa að taka breytingum með samfélaginu. Hún kveðst ætla að rýna gögn endurskoðunarnefndar þegar þau liggja fyrir.Vísir/Lýður Valberg „Öll velferðarsamfélög verða að búa að sterkum öryggiskerfum fyrir fólk sem þarf á stuðningi að halda, en það er mikilvægt að stuðningurinn renni til þeirra sem helst þurfa hann en sé ekki misnotaður. Jafnframt er mikilvægt að vinnufærir festist ekki í kerfum heldur fari að endingu aftur út á vinnumarkað.“ Meta þörf á úttekt þegar gögnin liggja fyrir Samkvæmt fundargerðinni mun nefndin meta hvort þörf sé á úttekt á fjárhagsaðstoðinni eftir að upplýsingarnar hafa borist. Hildur segir að fróðlegt verði að rýna gögnin þegar þau koma fram. „Svona kerfi þurfa að vera í sífelldri endurskoðun og taka breytingum eftir því sem umhverfið og samfélagsgerðin breytast. Þessi vinna endurskoðunarnefndar er því mjög þörf og við munum vinna málið af vandvirkni í framhaldinu.“ Spretthópur yfirfer stuðningskerfin í Kópavogi Vísir greindi frá því í gær að þriggja manna spretthópur eigi að yfirfara reglur um fjárhagsaðstoð og önnur stuðningskerfi Kópavogsbæjar. Vinnan á einnig að ná til félagslegs húsnæðis og hópurinn á að skila tillögum til bæjarráðs fyrir 1. desember. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri sagði meðal annars til skoðunar hvort fólk þyrfti að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma til að fá fulla fjárhagsaðstoð. Hún vísaði til danskra reglna en tók fram að engin ákvörðun hefði verið tekin um ný búsetuskilyrði. Að sögn Ásdísar hafði hlutfall útlendinga meðal þeirra sem fengu fjárhagsaðstoð hjá bænum hækkað úr 33 prósentum árið 2021 í 71 prósent. Hún sagði breytingar á hópnum meðal ástæðna þess að tímabært væri að endurskoða reglurnar en tók jafnframt fram að engar vísbendingar væru um misnotkun kerfisins.
Reykjavík Félagsmál Borgarstjórn Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira