Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Bjarki Sigurðsson skrifar 21. september 2026 08:52 Hildur Björnsdóttir á kosninganótt í maí. Vísir/Vilhelm Borgarráð hefur samþykkt tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga (SÍS) umboð til kjarasamningsgerðar fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Samninganefnd verður þannig leyst undan störfum. Þá verður eignarhald og ábyrgð Jafnlaunastofu endurskoðað.
Á fundi borgarráðs á fimmtudag lagði Hildur til að SÍS fengi umboð til kjarasamningsgerðar fyrir hönd borgarinnar við stéttarfélög. Síðan 1989 hefur sérstök samninganefnd verið með umboðið en borgarstjóri skipar í hana. SÍS hefur þó sinnt ýmsum viðræðum fyrir hönd borgarinnar, þar á meðal við kennara og Félag íslenskra hljómlistarmanna. „Hagsmunir Reykjavíkurborgar liggja í þéttu og öflugu samstarfi á vettvangi kjaramála hins opinbera og með hliðsjón af þróun mála á opinberum vinnumarkaði, sér í lagi með þeirri þróun sem hefur orðið á umræðu og umgjörð á virðismati starfa hins opinbera, er fullt tilefni til þess að endurskoða sérkjarasamningsstefnu Reykjavíkurborgar,“ segir í minnisblaði Lóu Birnu Birgisdóttur, sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfissviðs, sem fylgdi tillögu Hildar. Með sameiginlegri kjarasamningsgerð megi styrkja samningsstöðu sveitarfélaganna. Vilja ekki eiga Jafnlaunastofu Hildur leggur einnig til að sameiginlegt eignarhald og ábyrgð á Jafnlaunastofu verði endurskoðað. Félagið hefur fengið jöfn framlög frá Reykjavíkurborg og SÍS og er hlutverk félagsins meðal annars að hafa umsjón með rekstri verkefnastofu starfsmats. Sé SÍS með umboð til kjarasamningsgerðar fyrir hönd borgarinnar sé það úrelt fyrirkomulag að borgin sé eigandi félagsins. Greiðslur til fulltrúa í samningsnefnd og vegna starfa formanns og varaformanns á skrifstofu kjaramála nema 58,8 milljónum á ári og rekstur Jafnlaunastofu kostar borgina 55,5 milljónir. Áætlað samningsgjald sé 48,4 milljónir og þannig sparist tæpar 66 milljónir á ári Lýðræðishalli og stefnuleysi Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokks. Pétur Marteinsson og Skúli Helgason, fulltrúar Samfylkingar, greiddu hins vegar atkvæði gegn tillögunni og sögðu meirihlutann reyna að fría sig pólitískri ábyrgð á kjarasamningum eigin starfsfólks. „Að stærsti atvinnurekandinn á sveitarstjórnarstiginu ætli að afhenda kjarasamningsumboð sitt í heild sinni til hagsmunasamtaka úti í bæ, í stað þess að leiða slíkar viðræður og bera ábyrgð gagnvart vinnandi fólki í borginni, lýsir ákveðnum lýðræðishalla og stefnuleysi. Það er sjálfsögð viðleitni að leita leiða til að hagræða og spara í útgjöldum borgarinnar og hér er boðuð hagræðing upp á 65 m.kr. Það er vel en sá sparnaður yrði skammgóður vermir ef hann leiðir til þess að borgin fórni meiri hagsmunum við kjarasamningsborð í framtíðinni,“ segir í bókun þeirra. Firri sig ábyrgð Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, er áheyrnarfulltrúi í ráðinu og bókaði einnig gegn tillögunni. „Fulltrúi Vinstrisins mótmælir þessari tillögu og telur að Reykjavíkurborg eigi sjálf að sinna kjarasamningsgerð og bera ábyrgð gagnvart fólkinu sem vinnur fyrir hana í stað þess að færa ákvarðanatöku frá borginni og firra sig þannig pólitískri ábyrgð,“ segir í bókun hennar. Málið fer nú til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar. Í fyrrnefndu minnisblaði sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfissviðs er gert ráð fyrir að SÍS fái umboð 1. október næstkomandi og því eru allar líkur á að málið verði lagt fyrir borgarstjórn á næsta fundi hennar.
Kjaramál Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira