Fundað í flugvirkjadeilu Telma Tómasson skrifar 18. september 2026 06:26 Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, kveðst nú gera úrslitatilraun til að koma í veg fyrir verkfall, sem að óbreyttu mun hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. Vísir/Vilhelm Samninganefndir í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa verið boðaðar til fundar í Karphúsinu á hádegi í dag. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari við fréttastofu. Hann segist hafa verið í stöðugu sambandi og átt í samráði við báðar samninganefndir undanfarna daga.
Komið hafi fram á fundi með flugvirkjum í gær ósk um að reyna til þrautar að ná samningum, enda sé það vilji beggja aðila að afstýra boðuðu verkfalli. Sáttasemjari segir miðlunartillögu eitt af því sem væri til skoðunar, væri hún líkleg til að sætta sjónarmiðin, og hafi hann nú þegar fyrirliggjandi einhverjar tillögur sem unnt væri að leggja fram skapist grundvöllur til þess. Ástráður segist bjartsýnn þar til annað kemur á daginn, nú sé gerð úrslitatilraun til að afstýra verkfalli, sem að óbreyttu mun hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. Samningar flugvirkja hafa verið lausir frá síðustu áramótum, í rúma átta mánuði. Viðræður hófust í nóvember í fyrra og deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í febrúar. Megindeiluefnið er leiðrétting vegna skekkju í kjörum flugvirkja gagnvart viðmiðunarstéttum, en Icelandair hefur sagt kröfur þeirra umfram svigrúm félagsins. Fyrirhugað verkfall hefur þegar haft áhrif á ferðaáætlanir fólks, en rúmlega þúsund farþegar Icelandair hafa nýtt sér boð félagsins um að færa flug vegna þess. Þá hefur verið greint frá afbókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum hér innanlands.
Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Kjaramál Flug Vinnumarkaður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira