Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Eiður Þór Árnason skrifar 16. september 2026 21:14 Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir segir starfsfólk borgarinnar eiga skilið meiri virðingu. Ummæli Hildar Björnsdóttur borgarstjóra hafa verið gagnrýnd. Vísir Fyrrverandi starfsmaður Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar fordæmir ummæli borgarstjóra um störf skrifstofunnar og segir þau „ósanngjörn, ófagleg og lýsa fullkomnu skilningsleysi á þeim verkefnum og starfi sem skrifstofan hefur sinnt í nær tvo áratugi.“
Fyrrum borgarstjóri hefur blandað sér í umræðuna en tilefnið er viðtal við Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í Kastljósi RÚV. Umrædd skrifstofa var lögð niður eftir að nýr meirihluti tók við stjórnartaumum í maí. „Við stöndum meðal fremstu þjóða þegar kemur að mannréttindum og ég tala nú ekki um réttindi hinsegin fólks og ég get alveg sagt þér að það er ekki vegna þess að það hafi verið að störfum einhver sex manna mannréttindaskrifstofa hjá Reykjavíkurborg,“ sagði Hildur í samtali við Kristján Kristjánsson. Þannig að hún hefur ekki gert neitt gagn? „Nei, með fullri virðingu fyrir henni þá gerði hún það ekki og við sögðum líka mjög skýrt í kosningunum að við myndum leggja þessa skrifstofu niður fengjum við til þess tækifæri.“ Lýsi virðingarleysi Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir starfaði á skrifstofunni fyrir breytinguna en var svo flutt á annað svið hjá borginni. „Hér er verið að tala niður til starfs mannréttindaskrifstofu sem spannaði yfir 18 ár - þar sem fjöldinn allur af verkefnum sem tengdust ofbeldismálum, aðgengismálum, hinsegin málum, lýðræðismálum og jafnréttismálum voru unnin af heillindum. Mörg verkefni sem eru beinlínis lögbundin,“ segir hún í færslu á Facebook-síðu sinni. Ummæli borgarstjóra lýsi gríðarlegu virðingarleysi. „Mér finnst eitt að fara í skipulagsbreytingar og hagræðingu, en það er eitthvað allt annað að segja að starfsfólkið þitt hafi ekki verið að gera neitt gagn.“ Þar að auki hafi meirihluti starfsfólks verið færður á önnur svið. „Að fólk leyfi sér að tala svona um starfsfólk sitt er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Við eigum öll skilið meiri virðingu en svo,“ skrifar Ugla. Borgarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna borgarinnar. Barist gegn ofbeldi Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, tekur upp hanskann fyrir mannréttindaskrifstofuna og endurbirtir lista yfir hluta þeirra verkefna sem þarf voru unnin. „Um leið vil ég biðja fólk að velta fyrir sér hvað þátt jafnrétti, umburðarlyndi, frjálslyndi og virðing fyrir fólki á í því að skapa gott samfélag - og góða borg. Í mínum huga eru þessir þættir og barátta gegn ofbeldi í öllum þess myndum órjúfanlegur hluti og eitt lykilatriðið í að skapa öryggi og lífsgæði og þá sterku tilfinningu að í Reykjavík getum við öll verið eins og við erum. Þetta voru einmitt verkefni skrifstofunnar,“ segir hann í færslu á Facebook-síðu sinni. Dagur segir að skrifstofan hafi meðal annars átt aðkomu að því að eyða launamun kynjanna hjá borginni, betri nálgun gegn heimilisofbeldi, stofnun Bjarkahlíðar sem er miðstöð fyrir fórnarlömb ofbeldis, hinsegin fræðslu, uppsetningu hjólastólarampa með Haraldi Þorleifssyni og sinnt málefnum eldri borgara.
Reykjavík Borgarstjórn Mannréttindi Stjórnsýsla Rekstur hins opinbera Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira