Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 19:24 Þóra Helgadóttir segir að gagnaverið gæti orðið það stærsta á Íslandi. Samsett Til stendur að byggja eitt stærsta gagnaver Íslands við Bakka á Húsavík. Uppbyggingin muni fjölga störfum í bænum töluvert og kosta um 120 milljarða króna. Bandarískur tæknirisi gæti orðið viðskiptavinur gagnaversins.
Uppbyggingin var kynnt á skipulagsfundi á Húsavík í dag. „Hugmyndin sem kom fram á þessum skipulagsfundi í dag er að byggja upp stórt gagnaver á iðnaðarsvæðinu Bakka. Það er verkefni sem er búið að vera í vinnslu í talsvert langan tíma en núna fyrst erum við að kynna verkefnið fyrir almenningi,“ segir Þóra Helgadóttir Frost, forstjóri viðskiptaþróunar hjá Akur Capital, sem sér um uppbygginguna. Þau hafi átt í nánu samstarfi við sveitarstjórn Norðurþings vegna verkefnisins og fengið sömuleiðis jákvæð viðbrögð í samfélaginu við nýju atvinnutækifæri. Gagnaverið á að bjóða upp á 100 MW gagnavinnslu og kosta milljarð Bandaríkjadollara, um 120 milljarða króna. Þegar er hafið samtal við Landsvirkjun um rafmagnsnotkunina. Akur Capital sér einungis um fjárfestingu í uppbyggingu húsnæðisins en viðskiptavinur þess muni greiða fyrir innviðina. Þau eiga í samningaviðræðum við bandarískt stórfyrirtæki á sviði gervigreindar en ekki má enn uppljóstra um hvaða fyrirtæki það er. Uppbygging húsnæðisins muni skapa á milli fjögur og fimm hundruð störf en gangi allt eftir hefjast framkvæmdirnar á fyrsta ársfjórðungi árið 2027. „Hvað varðar fastráðin störf eftir á eru það um fimmtíu störf,“ segir Þóra og bætir við að það muni einnig skila sér afleiddum störfum. Skapi fleiri störf eftir endalok kísilmálmframleiðslunnar Líkt og kom fram er verkefnið unnið í samráði við sveitarstjórn Norðurþings. Fjölda fólks var sagt upp þegar PCC BakkiSilicon hf. þurfti að stöðva kísilmálmframleiðsluna sína. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði afskipti af málinu og skipaði starfshóp sem hafði það að markmiði að kortleggja stöðu atvinnumála á svæðinu og vinna tillögur að viðbrögðum stjórnvalda. Þar tók Kristrún fram að fimm til sex fjárfestingaraðilar hefðu áhuga, þar á meðal eitt gagnaver. Þóra segir að einnig verði hugað að sjálfbærni við uppbyggingu gagnaversins og sé markmiðið að það verði sjálfbært. Sömuleiðis verði til mikil þekking á svæðinu um hvernig eigi að byggja upp gagnaver á skilvirkan hátt.
Gagnaver Gervigreind Norðurþing Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira