Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 15. september 2026 08:09 Bjarni Benediktsson er ekki bjartsýnn á að hægt verði að semja áður en kemur til verkfalls flugvirkja. Vísir/Lýður Valberg Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna.
Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) tilkynnti Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi, eftir rúma viku. Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hófst á föstudag og lauk í gær. 92 prósent tóku þátt og að 88,3 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu vinnustöðvunina. Kjarasamningar hafa verið lausir frá því um áramótin en viðræður hafa verið í gangi síðan í nóvember á síðasta ári. Í september eru áætlunarflug Icelandair um 110 talsins á dag og fjöldi farþega um fimmtán þúsund. Ljóst er að verkfall getur þannig haft áhrif á fjölda fólks. „Akkúrat núna ber mjög mikið milli samningsaðila, því miður, og útlitið ekki allt of gott,“ segir Bjarni og að ekki sé útlit fyrir að hægt verði að brúa þá gjá sem sé á milli samningsaðila á þessari rúmu viku sem er til stefnu. „Hérna er um það að ræða að Icelandair metur kostnaðaráhrifin af þeirri kröfu sem er uppi um launahækkanir upp á um 25 til 30 prósent á þessum tveimur árum og það er svo langt fyrir utan það sem félagið telur að hægt sé að réttlæta,“ segir Bjarni. Kröfur samrýmist illa Ef þetta sé sett í samhengi við annað sem sé í gangi á vinnumarkaði, það er forsendubrest almennra kjarasamninga, þá sé merkilegt að stéttarfélög séu annars vegar með háværar kröfur um að fyrirtækin í landinu haldi aftur af sér til þess að styðja við lækkun verðlags og hins vegar séu þau með kröfur upp á 25 til 30 prósenta hækkun á kostnaði. „Þetta samrýmist nú afskaplega illa,“ segir Bjarni og að þessar kröfur séu ekki í neinum takti við eðlilega launaþróun á Íslandi, og ekki síst við þær aðstæður sem séu uppi núna, eða fyrir fyrirtækið í þeirri alþjóðlegu samkeppni sem það er í. Spurður hvort flugvirkjar og flugmenn, sem einnig eru í viðræðum hjá sáttasemjara, séu erfiðir hópar til að semja við segist hann ekki geta sagt til um það en það sé tilefni til að hafa áhyggjur af samkeppnishæfni flugrekstrar á Íslandi og almennt hafi samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja dalað undanfarin misseri. Vextir hafi verið í hæstu hæðum í þrjú ár og hagvöxtur afskaplega takmarkaður, launahlutföllin há og kröfur um þau hækki. Geri umbætur í sameiningu Bjarni segir Samtök atvinnulífsins kalla eftir því að vinnumarkaður og stjórnvöld taki höndum saman og geri umbætur á íslenska vinnumarkaðsmódelinu. Það séu allar aðstæður á Íslandi til að tryggja launþegum há laun og sterkan kaupmátt en það sé verið að framleiða verðbólgu með því að vera með „lausbundið fyrirkomulag“ um þróun launa frá einum tímapunkti til annars. „Virðumst ekki geta komið auga á það og ekki getað komið okkur saman um það hvernig við getum gert betur.“
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Icelandair Verðlag Efnahagsmál Atvinnurekendur Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Sjá meira