Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. september 2026 22:49 Jón Birgir Jónsson nýráðinn forstjóri Kviku banka hefur lengi starfað erlendis. Samsett Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgir Jónsson sem forstjóra bankans. Hann mun taka við starfinu af Ármanni Þorvaldssyni þann 1. desember næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku banka en þar segir að Jón búi yfir mikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hafi stærstan hluta starfsferils síns starfað erlendis hjá tveimur af stærstu eignastýringarfyrirtækjum heims. Jón hafi lokið grunnnámi í stærðfræði við Háskóla Íslands og framhaldsnámi í fjármálaverkfræði við New York University. „Á árunum 2013 til 2025 starfaði Jón Birgir hjá Neuberger Berman í London, þar sem hann var einn af eigendum félagsins og gegndi stjórnendastöðu. Hann kom til félagsins til að styrkja starfsemi þess á sviði alþjóðlegra skuldabréfafjárfestinga og sinnti síðar í auknum mæli samskiptum við fag- og stofnanafjárfesta.“ Þar áður hafi hann starfað hjá J.P. Morgan Asset Management frá árinu 1998, bæði í New York og London, sem sjóðstjóri með áherslu á skuldabréf og alþjóðlega vaxtamarkaði. Þrátt fyrir að hafa starfað lengi erlendis hafi Jón haldið sterkum tengslum við íslenskt atvinnulíf, meðal annars sem stjórnarformaður í Bresk-íslenska viðskiptaráðinu. Umfangsmikil reynsla og alþjóðleg tengsl muni nýtast vel „Ég er fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Þetta er virkilega spennandi verkefni og bankinn er einstaklega vel í stakk búinn til áframhaldandi sóknar, með góða innviði, sterkan efnahagsreikning og framúrskarandi starfsfólk. Markmið okkar er og verður áfram að veita viðskiptavinum okkar öfluga fjármálaþjónustu,“ er haft eftir Jóni í tilkynningunni. Eins og fyrr sagði tekur Jón Birgir við starfinu af Ármanni Þorvaldssyni, en hann tilkynnti í júní að hann hygðist láta af störfum sem forstjóri bankans. Ármann tók við sem forstjóri Kviku árið 2017, var um tíma aðstoðarforstjóri félagsins og hefur síðan aftur gegnt stöðu forstjóra síðastliðin þrjú ár. Haft er eftir Sigurði Hannessyni stjórnarformanni Kviku að Ármann eigi miklar þakkir skildar fyrir hans mikilvæga framlag til bankans. „Það er ánægjulegt að fá Jón Birgi í öflugt lið Kviku. Umfangsmikil reynsla hans af fjármálamörkuðum og sterk alþjóðleg tengsl munu nýtast Kviku vel í áframhaldandi þróun bankans. Um leið vil ég þakka Ármanni Þorvaldssyni fyrir mikilvægt framlag hans til Kviku. Á forstjóratíð hans hefur bankinn vaxið verulega og þróað öflugan og fjölbreyttan rekstur. Fyrir þann árangur á Ármann, ásamt öllu því öfluga starfsfólki sem lagt hefur sitt af mörkum á þessari vegferð, miklar þakkir skildar,“ er haft eftir Sigurði.
Vistaskipti Kvika banki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira