„Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. september 2026 19:42 Jóhann Kristinn Gunnarsson, og þjálfarateymið allt, gat leyft sér að fagna í leikslok. Vísiri/Hulda Margrét „Tilfinningin er náttúrulega ólýsanleg,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir að liðið tryggði sér sinn fyrsta bikarmeistaratitil með sigri gegn Grindavík/Njarðvík í úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. „
Ég er bara stoltur af liðinu mínu. Við lendum undir en sýnum karakter og komum til baka. Þessi leikur var pínu rússíbani. Hann var lokaðri en ég átti von á, en við áttum að mínu mati að skora einhver fjögur mörk ef allt er talið saman. Í byrjun náum við ekki að skora úr einhverjum þremur tilraunum á fimm sekúndum sem var alveg rosalegt,“ sagði Jóhann. „Svo komast þær auðvitað bara inn í þetta. Þær eru með gott lið og gera þetta vel. Eru með mikla pælara á bekknum sem voru að fara í gegnum okkur. Þetta var bara skemmtilegur leikur og mér fannst seinni hálfleikur líða hratt. Ég veit að það er talað um lokaða leiki sem leiðinlega leiki, en ég hafði mjög gaman að þessu. Ég er bara rosalega ánægður með mitt lið og gæti ekki verið stoltari.“ Þá tók Jóhann undir að hans lið hafi ekki náð að sýna almennilega sitt rétta andlit fyrr en þær lentu undir. „Já, við vorum bara aðeins of passívar í leiknum og mér fannst við líka bara svo miklir klaufar. Mér fannst við vera að missa boltann of mikið frá okkur, það voru óhreinar sendingar og snertingarnar voru ekkert alltof góðar hjá okkur. Við vorum pínu klaufar en stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn og það gerðum við þegar við lentum undir,“ sagði Jóhann. „Kannski breytist líka ýmislegt þegar þú skorar mark eins og í tilviki Grindavíkur/Njarðvíkur í dag. Þegar þú kemst yfir þá getur verið að þú haldir að eitthvað sé komið. Við gengum á lagið í dag og mér fannst við sýna klærnar og bit hérna í restina.“ Jóhann segir einnig að hann vonist til að sjá ákveðna kúltúrbreytingu hjá félaginu eftir að hafa landað þessum titli. „Ég get náttúrulega ekki séð inn í framtíðina en ég trúi því að þetta skref taki okkur lengra. Þetta er oft þröskuldur að vera ekki búinn að vinna til að breyta ákveðnum kúltúr sem að getur verið í félögum. Ég vil trúa því að þetta hafi verið þröskuldur sem við erum búin að stíga yfir núna, þetta félag. Það er rosalega góður andi, mikill metnaður og mikil keyrsla og orka í félaginu. Ég ætla bara að segja það við höfum verið að taka stórt skref í átt að þröskuldarlausu Þróttarasamfélagi,“ sagði Jóhann að lokum.
Íslenski boltinn Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira