Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Árni Sæberg skrifar 11. september 2026 14:38 Anna Hrefna Ingimundardóttir er aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir svokallað þríhliða samtal ríkis og aðila vinnumarkaðar ganga vel og hafa þegar skilað mikilvægum upplýsingum, þvert á það sem verkalýðsforkólfar hafa sagt undanfarið.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stofnaði til þríhliða samtals ríkis, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins í vor, þegar stefndi í að forsendur kjarasamninga myndu bresta. Nú er ljóst að heimilt er að slíta stöðugleikasamningunum svokölluðu, þar sem verðbólga mældist yfir forsenduákvæði þeirra. Aðilar vinnumarkaðar hafa fram að 8. október til þess að koma í veg fyrir að samningar slitni. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hefur sagt undanfarnar vikur að samtalið þríhliða sé í skötulíki og Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í vikunni að sáralítið hefði gerst og engar formlegar viðræður um kjarasamninga væru hafnar. Meðlimur í stýrihópnum ósammála Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA og meðlimur í stýrihópi þríhliða samtalsins, er þeim ekki sammála. „Við teljum það ganga ágætlega. Það kom mikilvæg greiningarvinna út úr vinnunni sem var í gangi í sumar. Þar mætti kannski helst nefna að farið var í greiningu á því hvernig mismunandi samfélagshópum hefur reitt af í þessari kjarasamningalotu. Þar kom í ljós að allir samfélagshópar hefðu upplifað kaupmáttarvöxt, sem kemur í rauninni á óvart í ljósi þess að það hefur verið nokkur hægagangur í hagkerfinu. Þannig að það er allavega eitt jákvætt sem það hefur komið í ljós í þessari vinnu.“ Þá hafi verið ráðist í vinnu við að kortleggja umfang verðtryggingar og hvernig mætti draga úr vægi hennar í hagkerfinu. „Það var líka komist að þeirri niðurstöðu að við þyrftum að safna betri gögnum um launaþróun á Íslandi til að átta okkur betur á þessari dínamík í launamyndun á vinnumarkaði. Eins og við vitum þá hafa laun á Íslandi gjarnan þróast úr takti við framleiðnivöxt og það setur þrýsting til aukinnar verðbólgu og við þurfum einhvern veginn að reyna að girða fyrir þessa þróun. Þannig ég myndi segja að það hafi mjög mikilvæg og góð greiningarvinna komið út úr þessu þríhliða samtali í sumar.“ Bjartsýn á að lending finnist en launahækkanir væru olía á eldinn Hvað viðræðurnar sjálfar varðar segist Anna Hrefna leyfa sér að vera bjartsýn á það að aðilar vinnumarkað geti náð einhvers konar lendingu. „Það er okkar að finna út úr því en það er afskaplega mikilvægt að það viðbragð, hvers sem það verður, að það verði til þess fallið að styðja við þessi höfuðmarkmið sem við settum okkur þegar við gerðum þessa samninga. Þannig að hver svo sem lendingin verður þá verður hún á grundvelli þess að verðbólga geti minnkað og vextir lækkað.“ VR og fagfélögin ályktuðu á dögunum að til þess að kjarasamningar geti haldið þurfi að leiðrétta kjarasamningsbundin laun gagnvart verðbólgu, fjölga frídögum til að koma til móts við þjónustuskerðingar við leik- og grunnskólabörn og tryggja raunverulegt þak á verð- og gjaldskrárhækkanir. Áðurnefndur Vilhjálmur sagði í samtali við Vísi í lok ágúst, þegar forsendur kjarasamninga brustu, að hann teldi ólíklegt að verkalýðshreyfingin gæti sætt sig við annað en launahækkanir ef ekki ætti að slíta samningum. Anna Hrefna slær launahækkanir svo gott sem út af borðinu. „Ég held að það sé algjörlega óhætt að segja það að frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn og Seðlabankinn hefur gefið það út með berum orðum. Staðan er sú að einn mikilvægasti forsendubresturinn sem í rauninni hefur orðið í þessum samningum er sá að framleiðnin, sem er það sem þarf til að standa undir launahækkunum, hún hefur ekkert vaxið á samningstímanum. Hún hefur dregist saman. Á sama tíma hafa laun hækkað allverulega og talsvert umfram það sem samið var um upphaflega í samningunum. Þannig að það sem af er kjarasamningstímanum þá hefur framleiðniþróunin ekki verið að styðja við launahækkanirnar. Það hefur ekki verið nein innistæða í reynd fyrir þeim launahækkunum sem þegar hafa átt sér stað.“ Fjárlög liðki ekki fyrir Að lokum nefnir Anna Hrefna að fjármálafrumvarp fyrir árið 2027, sem var kynnt á dögunum, sé ekki til þess fallið að gera atvinnurekendum kleift að greiða hærri laun. „Það var tilkynnt um tugmilljarða skattahækkanir á atvinnulífið og við teljum að þetta muni ekki styðja við framhald kjarasamninganna. Það er ekki jákvætt að ofan í hægagang í hagkerfinu, uppnám kjarasamninga á vinnumarkaði, að þá sé verið að tilkynna um slíkar skattahækkanir á atvinnulífið. Það er nú þegar ekki mikið svigrúm til að ráðast í þær launahækkanir sem þegar hefur verið samið um og þessar skattahækkanir nema um 40 prósentum af umsömdum launahækkunum á almennum vinnumarkaði á næsta ári. Þannig að þetta eru verulegar fjárhæðir í því samhengi.“
Kjaramál Stéttarfélög Atvinnurekendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Vinnumarkaður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira