Körfubolti

Þrjár Evrópu­þjóðir í undan­úr­slitum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Leonie Fiebich var stigahæst í þýska landsliðinu sem fer í undanúrslit á heimavelli.
Leonie Fiebich var stigahæst í þýska landsliðinu sem fer í undanúrslit á heimavelli. EPA/FILIP SINGER

Evrópa á þrjá fulltrúa í undanúrslitum á HM kvenna í körfubolta eftir að hafa átt engan fyrir fjórum árum. Átta liða úrslitin fóru fram í Berlín í dag.

Átta liða úrslitin fóru öll fram í íþróttahöllinni í Berlín í dag. Leikar hófust með leik Bandaríkjanna við Ungverjaland. Þar voru þær bandarísku í engum vandræðum og leiddu 36-12 eftir fyrsta leikhluta.

Það var merki um það sem koma skyldi og sigur ríkjandi heimsmeistara síðustu fjögurra móta aldrei í hættu. Lokatölur 108-56 Bandaríkjunum í vil. Þær bandarísku gátu dreif álaginu vel fyrir komandi átök í undanúrslitunum þar sem allir leikmenn hópsins spiluðu yfir tíu mínútur og Caitlin Clark sú eina sem spilaði meira en 20 mínútur.

Það kom í ljós í lokaleik dagsins að Spánn mun mæta þeim bandarísku í undanúrslitunum. Spánn gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir ríkjandi bronshafa Ástralíu 89-66.

Spánn mætir því gríðarsterku bandarísku liði í undanúrslitum á laugardaginn kemur.

Í hinu undanúrslitaeinvíginu er slagur Evrópuliða. Frakkland gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir silfurlið síðasta móts, Kína. Frábær annar leikhluti lagði grunninn að 90-61 sigri þeirra frönsku sem hefndu fyrir að hafa fallið úr keppni fyrir Kína í 8-liða úrslitum á HM fyrir fjórum árum.

Heimakonur í þýska landsliðinu verða andstæðingar þeirra frönsku í undanírslitum. Spennan var litlu meiri í leik þeirra þýsku við Belgíu. Þýskaland leiddi með þremur stigum eftir fyrsta leikhlutann og byggði ofan á það forskot hægt og bítandi til að fagna 19 stiga sigri, 93-74.

Eftir að hafa átt engan fulltrúa á meðal fjögurra bestu liða heims í undanúrslitum á síðasta móti eru þrjú í ár. Bæði silfur- og bronslið síðasta móts voru slegin út af Evrópuþjóðum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×