Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Samúel Karl Ólason skrifar 10. september 2026 20:15 Kevin Reddington vill komast hjá nýjum réttarhöldum gegn Lindsay Clancy og að dómari úrskurði hana ósakhæfa. AP/Greg Derr, The Patriot Ledger Lögmaður Lindsay Clancy hefur farið fram á það við dómara að hann hlífi henni gegn öðrum réttarhöldum og segir að saksóknarar sitji ekki á nægjanlegum sönnunargögnum. Þeir geti ekki sýnt fram á að hún sé sakhæf fyrir að hafa banað þremur ungum börnum sínum.
Þess í stað vill Kevin Reddington, lögmaðurinn, að William Sullivan, dómarinn í málinu, úrskurði sjálfur að Clancy sé ósakhæf vegna geðrænna vandamála, samkvæmt AP fréttaveitunni. Ellefu kviðdómendur af tólf vildu sýkna hana af sömu ástæðum eftir sjö vikna réttarhöld en sá tólfti neitaði að gera það, þótt hann hefði viðurkennt að hann efaðist um að hún væri sakhæf. Dómarinn þurfti því að binda enda á réttarhöldin án niðurstöðu. Sjá einnig: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Saksóknarar í Plymouth-sýslu í Massachusetts hafa ekki opinberað hvort þeir ætli sér að rétta yfir hinni 36 ára gömlu Clancy á nýjan leik. Timothy Cruz, yfirsaksóknari Plymouth-sýslu í Massachusetts.AP/Charles Krupa Í janúar 2023 kyrkti Clancy þrjú börn sín með æfingateygjum og reyndi síðan að svipta sig lífi með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. Hún lamaðist fyrir neðan mitti við fallið. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Hún hafði ítrekað leitað sér aðstoðar og skömmu fyrir morðin fór hún sjálfviljug á geðdeild. Hún var útskrifuð þaðan nítján dögum áður en hún myrti börnin. Sjá einnig: Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða. Málið gegn Clancy hefur verið mikið á milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð. Símtal eiginmanns Clancy til neyðarlínunnar var spilað í dómsal en þrjár konur sem voru í kviðdómnum sögðu í viðtali að það hefði verið eitthvað það versta sem þær hefðu heyrt. Símtalið hefði aftur verið spilað þegar kviðdómendur voru að reyna að ná saman um niðurstöðu og þá hefði fólk brostið í grát. Sjá einnig: „Hún drap börnin“ Dómarinn viðurkenndi í dómsal að réttarhöldin hefðu tekið verulega á fyrir alla sem að þeim komu. Clancy sjálf fór nokkrum sinnum að gráta í dómsal en Sullivan þurfti einu sinni að gera hlé á réttarhöldunum. Þá höfðu verið sýndar myndir af líkum barnanna og Clancy fór að hágráta. Í nýrri kröfu til dómarans bendir Reddington á að samkvæmt lögum Massachusetts þurfi saksóknarar að sanna að Clancy ætti ekki við geðrænan vanda að stríða eða sanna að þrátt fyrir vanda hefði hún haft getu til að átta sig á því að gjörðir hennar væru rangar eða brot á lögum. Þeir hefðu gert hvorugt í réttarhöldunum. Enginn af þeim sérfræðingum sem hefðu borið vitni hefði haldið því fram að Clancy væri ekki veik. William Sullivan, dómari.AP/Greg Derr, The Patriot Ledger Þess í stað segir Reddington að saksóknarar hafi reynt að sýna fram á að Clancy hefði getað skipulagt afmælisveislu, farið með börn til læknis og haldið áfram að lifa fremur eðlilegu lífi og það væri til marks um að geðheilsa hennar hefði ekki verið svo slæm að hún hefði ekki verið meðvituð um hvað hún var að gera þegar hún banaði börnunum. Reddington sagði í kröfunni til dómarans að saksóknarar hefðu rangt fyrir sér. Geta til að framkvæma hefðbundin verkefni á krísutímum væri ekki, eins og allir sérfræðingar hefðu verið sammála um, til marks um sakhæfi svo það væri hafið yfir skynsamlegan vafa, samkvæmt lögum. Áður hefur Reddington sagt opinberlega að hann telji Clancy ekki hafa heilsu til að ganga gegnum önnur réttarhöld. Verði Clancy úrskurðuð ósakhæf, af dómara eða nýjum kviðdómi, verður hún að öllum líkindum áfram vistuð á réttargeðdeild. Ef hún verður á endanum úrskurðuð sakhæf og dæmd mun hún verja bróðurparti ævinnar, eða henni allri, í fangelsi.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Fleiri fréttir Önnur lestin fengið leyfi til að keyra áfram þrátt fyrir að vera á rauðu Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Sjá meira