Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. september 2026 14:56 Lucia Sisic er fallin frá langt fyrir aldur fram. Fegurðardrottningin Lucia Sisic, ríkjandi krúnuhafi fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Austurríki, er látin, aðeins 22 ára að aldri. Sisic fæddist með hjartalokugalla og gekkst undir sjö hjartaskurðaðgerðir á ævi sinni, þar af síðast á undanförnum vetri.
Samtökin Mission Austria, sem standa að Ungfrú Austurríki, greindu frá andláti Sisic í vikunni en dánarorsök hennar liggur ekki fyrir að svo stöddu. Aðstandendur samtakanna væru í miklu áfalli vegna fréttanna. „Við munum minnast Luciu sem frábærrar ungrar konu. Við hugsum hlýlega og sendum innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar, vina og allra þeirra sem stóðu henni nærri á þessum erfiða tíma,“ sagði í tilkynningunni sem Kerstin Rigger, forstjóri samtakanna, skrifaði undir ásamt eiginmanni sínum. „Elsku Lucia, þú verður alltaf hluti af fjölskyldu Ungfrúar Austurríkis. Hvíldu í friði.“ Borið krúnuna síðustu tvö ár Sisic var krýnd Ungfrú Austurríki árið 2024 og bar krúnuna til dauðadags sökum þess að keppnin hefur ekki farið aftur fram síðan þá. Austurrískir fjölmiðla hafa fjallað um andlát hennar og meðfæddan hjartalokusjúkdóm sem hún glímdi við. Sisic ræddi hjartagalla sinn við austurríska miðillinn Heute árið 2024 og sagðist þá hafa gengist undir sína fyrstu hjartaskurðaðgerð skömmu eftir fæðingu. Hjartagallinn hefði haft mikil áhrif á æsku hennar og komið í veg fyrir að hún gæti tekið þátt í íþróttum með jafnöldrum sínum. View this post on Instagram A post shared by Lucia (@luciasisic) Sisic ræddi heilsu sína jafnframt opinskátt á samfélagsmiðlum og tileinkaði fallega Instagram-færslu barnahjartalæknum sínum árið 2024 þegar hún færðist undir hendur almennra hjartalækna. „Ég hef sigrast á mörgu erfiðum augnablikum og fengið að lifa fullnægjandi lífi. Ég geri mér grein fyrir því að ég hef einungis öðlast stjórn á brotabroti af því sem er framundan. Þrátt fyrir það er ég stolt yfir því að hafa aldrei gefist upp, þó ég hefði margar ástæður til að gera það,“ sagði hún þá.
Andlát Austurríki Fegurðarsamkeppnir Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Sjá meira