Innherji

Fjár­festar veðja á meiri verð­bólgu en áður eftir kynningu á fjár­laga­frum­varpi

Hörður Ægisson skrifar
Sé litið á viðbrögð fjárfesta á skuldabréfamarkaði eftir kynningu Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahgsráðherra, það sem af er degi þá virðist þeir núna búast við meiri verðbólgu en áður.
Sé litið á viðbrögð fjárfesta á skuldabréfamarkaði eftir kynningu Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahgsráðherra, það sem af er degi þá virðist þeir núna búast við meiri verðbólgu en áður. Vísir/Anton Brink

Þrátt fyrir áform um hallalausfjárlög á komandi ári, sem nemur 0,1 prósenti af landsframleiðslu, hafa skuldabréfafjárfestar tekið fremur illa í fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar en verðbólguvæntingar á markaði hafa hækkað umtalsvert í morgun. Fjármálaráðherra boðar að aðhaldsstig ríkisfjármálanna, sem er áætlað lítillega neikvætt á þessu ári, verði „allnokkuð“ en samhliða því er útlit fyrir að hreinn lánsfjárjöfnuður batni umtalsvert á árinu 2027.


Tengdar fréttir

Halla­laus fjár­lög ekki í spákortum AGS fyrr en árið 2031

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væntir þess að það takist ekki að skila afgangi á rekstri ríkissjóðs fyrr en á árinu 2031, samkvæmt spá sjóðsins, en núgildandi fjármálaáætlun stjórnvalda gerir hins vegar ráð fyrir hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Sjóðurinn horfir aðeins til aðgerða sem þegar er búið að leggja fram fyrir Alþingi og segir markmið stjórnvalda í ríkisfjármálum vera „hæfilega metnaðarfull.“

For­sendum fjár­laga ógnað og hallinn gæti orðið 40 milljörðum meiri

Á meðan óveðursskýin hrannast upp yfir innlendu efnahagslífi, sem er líklegt til að birtast í minni vexti einkaneyslu og verulega auknu atvinnuleysi, þá mun það óhjákvæmilega raska forsendum fjárlaga ríkissjóðs og gæti halli þessa árs orðið nærri fjörutíu milljörðum meiri en var áætlað, samkvæmt nýrri greiningu Acro. Ef stjórnvöld ætla að standa við fyrirheit sín um hallalaus fjárlög á árinu 2027 þá er ljóst að hægari efnahagsumsvif munu kalla á víðtækari hagræðingaraðgerðir, eða enn meiri hækkun skatta.

AGS varar við aukinni hættu á að hag­vöxtur reynist minni en verðbólga meiri

Taumhald peningastefnu Seðlabankans þarf áfram að vera „nægjanlega þétt um nokkurt skeið“ eigi að tryggja varanlega og sjálfbæra hjöðnun verðbólgu, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en sendinefnd sjóðsins varar einnig við því að vegna átakanna við Persaflóa sé aukinn áhætta á að hagvöxtur muni reynast minni en verðbólga meiri. Þá leggur sjóðurinn til að opinberir starfsmenn taki þátt í kjaraviðræðum samhliða einkageiranum þannig að samningalotur séu betur samstilltar, sem myndi þá stuðla að launaþróun í samræmi við framleiðnivöxt og verðbólgu.

Felur í sér „veru­lega áhættu“ fyrir efna­hags­stöðug­leika og magnar hag­sveiflur

Fjármálaráð fer hörðum orðum um ákvörðun stjórnvalda að vísitölutengja bætur almannatrygginga, þar sem verið sé að bregðast við „ofmetnum“ vanda, og segir afleiðingarnar vera „veruleg áhætta“ fyrir stöðugleika í efnahagslífinu með því auka sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magna hagsveiflur og minnka getu ríkisins til að beita mótvægisaðgerðum. Í ljósi reynslu annarra þjóða þá „sætir það furðu“, að mati ráðsins, að slíkt kerfi sé tekið upp, einkum þegar litið er til þess að tekjur öryrkja hafa vaxið hraðar en vinnandi fólks undanfarin áratug.

Út­lit fyrir tug­milljarða meiri láns­fjárþörf ríkis­sjóðs en áður var áætlað

Þrátt fyrir að afkoma ríkissjóðs stefni í jafnvægi á komandi árum samkvæmt nýrri fjármálaáætlun þá eru horfur á að hallinn á lánsfjárjöfnuði, sem segir til um hversu mikið ríkið þarf að taka af láni til að standa undir rekstri sínum, verði enn meiri út allt tímabilið en áður var áætlað. Fjármála- og efnahagsráðherra boðar eilítið meira aðhaldstig í ríkisfjármálum á árinu 2027 en það mun síðan fara minnkandi árin þar á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×