Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Samúel Karl Ólason skrifar 4. september 2026 15:33 Lindsay Clancy og Kevin Reddington, lögmaður hennar, í dómsal í gær. AP/Gregg Derr, The Patriot ledger Dómarinn í málinu gegn Lindsay Clancy ætlar að gera réttarhöldin gegn henni ógild. Sú ákvörðun hefur þó verið sett á ís vegna áfrýjunar lögmanns Clancy til áfrýjunardómstóls. Kviðdómendur hafa ekki komist að niðurstöðu eftir margra daga tilraunir. Eftir að dómarinn sagði frá niðurstöðu sinni og rétt áður en hann tilkynnti kviðdómendum frá þeirri ákvörðun, fór lögmaður Clancy, sem heitir Kevin Reddington, fram á að hann fengi að áfrýja til áfrýjunardómstóls í Massachusetts. Ógildingingin mun því ekki taka gildi strax þar sem dómarinn gaf lögmanninum klukkutíma til að leita til áfrýjunardómstólsins. Í lok gærdagsins sagði steig formaður kviðdómsins fram og sagði að einn úr tólf manna hópnum færi ekki eftir skipunum dómarans hvað varðar leiðbeiningar um sönnunarbyrði og hugtakið „hafið yfir skynsamlegan vafa“ (e. beyond reasonable doubt). Sjá einnig: Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Það þótti benda til þess að flestir kviðdómendur vilji sýkna Clancy eða sakfella á grunni vægari ákæra morð. Lögmaður hennar vildi að þessum eina kviðdómenda af tólf yrði vísað úr kviðdómnum á þeim grunni að sá hefði brotið lög varðandi réttarhöld. Reddington vill ekki að réttarhöldin verði gerð ógild, heldur að hún verði sýknuð. Fyrr í vikunni sagðist hann telja að Clancy hefði ekki andlega heilsu til að ráða við önnur réttarhöld. Fyrir réttarhöldin í dag sagði Reddington að það yrði ekki sanngjörn niðurstaða fyrir Clancy að gera réttarhöldin ógild. Þá höfðu fjölmargir blaðamenn umkringt Reddington þegar hann var á leið í dómsal. Gaf kviðdómendum eitt tækifæri Fyrr í dag hafði William Sullivan, dómari, gefið kviðdómendum síðasta séns til að komast að sameiginlegri niðurstöðu um sekt Clancy eða sakleysi. Sjá einnig: Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Það skilaði ekki árangri. Formaður kviðdómsins sendi skilaboð til Sullivans í dag sem í stóð: „Það er með þungum hug sem við greinum frá því að okkur hefur ekki tekist að ná einróma niðurstöðu og teljum okkur ekki geta gert það.“ Dómarinn kallaði því Clancy og lögmann hennar, auk saksóknara, aftur í dómsal og sagði að hann gæti lítið annað gert en að ógilda réttarhöldin. Saksóknarar voru sammála að það væri eina í stöðunni. En það vildi Reddington ekki. Hann fór fram á að kviðdómendur yrðu látnir reyna enn einu sinni. Þegar dómarinn vildi það ekki, bað Reddington um að rætt yrði við hvern kviðdómanda fyrir sig. Hann vildi að þeir yrðu spurðir í einrúmi hvar þeir stæðu gagnvart ákærunum. Jennifer Prague, saksóknari, sagði það ekki mega og að ógilding væri það eina í stöðunni. Þá sagðist Sullivan ætla að ógilda réttarhöldin, þó að lögmaður Clancy vildi það ekki. Reddington mótmælti aftur og sagðist vilja áfrýja. Hann fékk klukkustund til þess. Hér að neðan má sjá hvað gekk á í dómsal á fjórða tímanum í dag. Eins og áður segir gaf dómarinn Reddington klukkustund en það var um klukkan 15:30 að íslenskum tíma. Ljóst er að það gæti tekið lengri tíma en það að fá niðurstöðu í málið. Endi málið þannig að réttarhöldin verði ógilduð þurfa saksóknarar að ákveða hvort þeir ætli að rétta aftur yfir Clancy, gera einhverskonar samkomulag við hana eða jafnvel fella niður ákærurnar gegn henni alfarið. Í janúar 2023 myrti Clancy þrjú börn sín og reyndi síðan að svipta sig lífi með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. Hún lamaðist fyrir neðan mitti við fallið. Lindsay Clancy kyrkti þrjú ung börn sín með æfingarteygjum og reyndi svo að svipta sig lífi. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Sjá einnig: „Hún drap börnin“ Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða. Sjá einnig: Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Málið gegn Clancy hefur verið mikið á milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Fréttin hefur verið uppfærð. Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Sjá meira