Góðar forsendur fyrir því að verðbólgan hjaðni „jafnvel allhratt“ á næstunni
Fjármálaráðherra þrætir enn fyrir að aukning í mældri verðbólgu stafi einkum af hækkun opinberra gjalda, sem seðlabankastjóri hefur sagt vera „staðreynd“, og segir þær fullyrðingar ekki eiga sér stoð í gögnum. Hann telur góðar forsendur fyrir því að verðbólgan geti hjaðnað „allhratt“ á næstunni og bendir á að það fáist varla staðist til lengdar að húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs hækki umfram aðra verðmælikvarða á íbúðamarkaði.
Tengdar fréttir
Þriðja vaxtahækkunin í röð en sjá fram á hratt hjaðnandi verðbólgu á næsta ári
Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur í takt við væntingar hækkað meginvexti bankans um 25 punkta, sem er núna komnir á sama stað og snemma árs í fyrra, enda þótt einn nefndarmaður hefði kosið óbreytta vexti. Yfirlýsing bankans ber með sér mildari tón en áður og bent er á að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða.
„Tókst að kynda undir verðbólgubálið“ og útséð um vaxtalækkanir á næstunni
Með skattkerfisbreytingum stjórnvalda um áramótin „tókst heldur betur að kynda undir verðbólgubálið“ en vísitala neysluverðs hækkaði margfalt meira í janúar en meðalspá greinenda gerði ráð fyrir. Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafa rokið upp og peningastefnunefnd Seðlabankans getur gert lítið annað en „legið á bæn og vonað það besta“, segja sérfræðingar ACRO.