„Var ekki langt frá því að tárast“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. september 2026 08:01 Ólafur Andrés í leik með Kristianstad. vísir/getty Rómantíkin varð til þess að Ólafur Andrés Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, tók skóna af hillunni. Hann fær tækifæri til þess að enda ferilinn á sínum eigin forsendum, hjá félaginu sem hann átti sínar bestu stundir hjá.
Ólafur lagði skóna á hilluna fyrr á þessu ári eftir afar krefjandi meiðslatímabil sem hélt honum frá keppni allt síðasta tímabil. Það kom því nokkuð á óvart er hann dúkkaði upp í leikmannahópi Kristianstad, gamla liði sínu þar sem að hann var margfaldur meistari á sínum tíma. Gunnar Steinn Jónsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta og góður vinur Ólafs er kominn inn í þjálfarateymi Kristianstad og hann fékk Ólaf inn á æfingu. Þá var ekki aftur snúið. Klippa: Ólafur kominn aftur til Kristianstad „Það er ákveðin rómantík í þessu finnst mér. Það var leiðinlegt að síðasta árið mitt spilaði ég ekki. Meiddur og slæmur í bakinu. Því náði ég ekki að hætta á mínum forsendum. Síðan kemur inn í þetta líka að þetta er minn klúbbur. Þeir eru sænskir meistarar og í Meistaradeildinni. Svo eru Íslendingar í liðinu. Allur pakkinn var mjög sjarmerandi,“ sagði Ólafur í samtali við íþróttadeild frá Kristianstad Arena. Ólafur er 36 ára gamall og skartar yfir fimmtán ára ferli í atvinnumennsku. Þaulreyndur landsliðsmaður og leiðtogi. „Hlutverkið mitt er tölvuvert frábrugðið því sem ég er vanur. Ég er að koma inn með reynslu og mjög mikið annað en handbolta þó svo það sé stór hluti. Stærsta hlutverkið verður varnarleikurinn og koma inn á æfingar með ákveðna reynslu og hugmyndafræði sem klúbburinn hefur verið að byggja upp síðustu ár. Miðla því áfram.“ Og stuðningsmenn Kristianstad hafa ekki gleymt honum. Móttökurnar, þegar Ólafur klæddist treyju félagsins á nýjan leik, voru magnaðar. „Þetta var ótrúleg upplifun og ég fékk gæsahúð. Ég var ekki langt frá því að tárast er ég var kynntur inn. Það hlýjaði manni um hjartað og mér þótti vænt um þetta. Það er yndislegt að finna þennan kærleik.“
Sænski handboltinn Handbolti Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira