Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. september 2026 12:01 Hundrað þúsund manns verða á leik Rams og 49ers í Melbourne. Leikurinn fer fram á besta tíma í Bandaríkjunum á fimmtudegi en fyrir hádegi á föstudegi í Ástralíu. mynd/rams NFL-deildin býður Kaliforníu-liðunum 49ers og Rams upp á krefjandi verkefni í fyrstu umferð NFL-deildarinnar. Það er að spila leik í Ástralíu.
Flugið þangað er sextán klukkutíma langt og svo er klukkan í Ástralíu sautján klukkutímum á undan Kaliforníu. Til að gera verkefnið enn meira krefjandi þá mun leikurinn hefjast klukkan 10.30 að staðartíma. Óhætt er að segja að liðin nálgist þetta verkefni á mismunandi hátt. San Francisco 49ers lagði í hann í gær og ætlar að jafna sig vel fyrir leikinn sem fer fram næstkomandi fimmtudag. LA Rams ætlar aftur á móti ekki að leggja í hann fyrr en seint. Hversu seint hefur liðið ekki viljað gefa upp. Rams notaði sömu taktík fyrir leik í London í fyrra. Þá lentu þeir degi fyrir leik, pökkuðu Jacksonville Jaguars saman og flugu beint heim eftir leik. Ekkert lið hafði gert það áður fyrir leik í London. Betra að fara seint til Ástralíu Eðli málsins samkvæmt eru skiptar skoðanir á því hvernig sé best að nálgast svona verkefni. Svefnsérfræðingur segir að Rams sé að gera þetta rétt og sé sigurstranglegra fyrir vikið. Svefnsérfræðingurinn segir að það muni líklega bíta 49ers í bossann að vera komna á ástralskan tíma þar sem leikurinn fari fram fyrir hádegi í Ástralíu. Íþróttamenn séu nefnilega upp á sitt besta líkamlega seinni part dags. „Það sem Rams er að segja við sína leikmenn er þetta. Þið eruð bestir klukkan 18 og fram eftir kvöldi. Þið munið opna augun einn daginn og sólin verður á furðulegum stað. Það mun taka heilann tvo daga að átta sig á aðstæðum en í millitíðinni verðið þið búnir að vinna 49ers og lagðir af stað heim,“ segir Cristoph Winter svefnsérfræðingur. Fleiri svefnsérfræðingar hafa tekið í sama streng og bæta við að það eina sem gæti skaðað Rams sé að leikmenn liðsins fái ekki nægan svefn í fluginu langa til Melbourne.
NFL Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira