Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Valur Páll Eiríksson og Aron Guðmundsson skrifa 1. september 2026 22:32 Það var nóg um að vera á félagsskiptamarkaðnum í dag Félagsskiptaglugganum hefur verið lokað á Englandi. Glugganum sem allir fylgjast náið með. Næstu klukkutímana eða svo munum við fá endanlega staðfest hvaða félagsskipti hafa gengið í gegn. Fjölmargar hreyfingar hafa átt sér stað í Evrópuboltanum í dag. Helst ber að nefna að íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er orðinn leikmaður Lazio. Hann kemur til liðsins á láni frá Fiorentina en Lazio er með kauprétt á kappanum að láninu loknu. Hjá Lazio mun Albert spila undir stjórn Ítalans eftirminnilega, Gennaro Gattuso. Fleira markvert gerðist í dag og stærstu bombuna eigum við eftir að fá staðfesta. 125 milljóna punda kaup Manchester City á miðjumanninum Enzo Fernandez sem að kvaddi Chelsea í færslu á samfélagsmiðlum nú rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Chelsea taldi sig vera búið að finna arftaka Enzo í Lamine Camara hjá Monaco en þau félagsskipti féllu upp fyrir undir lok gluggans. Forráðamenn Chelsea eru sagðir brjálaðir út í vinnubrögð Monaco í málinu. Englandsmeistarar Arsenal héldu að sér höndum í dag þrátt fyrir fagrar yfirlýsingar knattspyrnustjóra liðsins eftir leik gegn Aston Villa í gær. Arsenal hefur verið að losa sig við leikmenn og vildu stuðningsmenn sjá eitthvað keypt inn á móti í sóknarlínu liðsins en ekkert varð af því. Manchester City keypti svo kantmanninn Iliman Ndiaye frá Everton á 65 milljónir punda en Everton hefur fengið inn Jack Grealish á nýjan leik á láni frá City. Aðra markverða hluti sem áttu sér stað í dag á félagsskiptamarkaðnum má finna hér í textalýsingu dagsins neðar í fréttinni. Við þökkum fyrir samfylgdina í dag og höldum áfram að færa ykkur fréttir af félagsskiptum á morgun. Mælt er með því að endurhlaða síðuna ef vaktin sést ekki.
Fjölmargar hreyfingar hafa átt sér stað í Evrópuboltanum í dag. Helst ber að nefna að íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er orðinn leikmaður Lazio. Hann kemur til liðsins á láni frá Fiorentina en Lazio er með kauprétt á kappanum að láninu loknu. Hjá Lazio mun Albert spila undir stjórn Ítalans eftirminnilega, Gennaro Gattuso. Fleira markvert gerðist í dag og stærstu bombuna eigum við eftir að fá staðfesta. 125 milljóna punda kaup Manchester City á miðjumanninum Enzo Fernandez sem að kvaddi Chelsea í færslu á samfélagsmiðlum nú rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Chelsea taldi sig vera búið að finna arftaka Enzo í Lamine Camara hjá Monaco en þau félagsskipti féllu upp fyrir undir lok gluggans. Forráðamenn Chelsea eru sagðir brjálaðir út í vinnubrögð Monaco í málinu. Englandsmeistarar Arsenal héldu að sér höndum í dag þrátt fyrir fagrar yfirlýsingar knattspyrnustjóra liðsins eftir leik gegn Aston Villa í gær. Arsenal hefur verið að losa sig við leikmenn og vildu stuðningsmenn sjá eitthvað keypt inn á móti í sóknarlínu liðsins en ekkert varð af því. Manchester City keypti svo kantmanninn Iliman Ndiaye frá Everton á 65 milljónir punda en Everton hefur fengið inn Jack Grealish á nýjan leik á láni frá City. Aðra markverða hluti sem áttu sér stað í dag á félagsskiptamarkaðnum má finna hér í textalýsingu dagsins neðar í fréttinni. Við þökkum fyrir samfylgdina í dag og höldum áfram að færa ykkur fréttir af félagsskiptum á morgun. Mælt er með því að endurhlaða síðuna ef vaktin sést ekki.
Enski boltinn Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Fleiri fréttir Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Sjá meira